Fer á bílasölu og bið um að fá að prófa eitt stykki sem ég hafði verið að skoða. Við pabbi göngum inn og hittum þar á einn háklassa bílasala sem hafði ekki einusinni fyrir því að bjóða okkur góðan dag eða horfa framan í okkur þegar við töluðum við hann og þegar hann tók sig til og gubbaði út úr sér nokkrum orðum voru þau stútfull af hroka og leiðindum. Maður sem á ekki að koma nálægt starfi þar sem samskipti við viðskiptavini eru lykilatriði.
Ef þessi maður væri ekki svona ómerkilegur, þá gæti vel svo farið að ég hefði keypt þennan bíl sem olli því að ég rambaði þangað inn.
En þetta eru í raun mín einu slæmu kynni af bílasala. Flestir sem ég hef rætt við hafa verið almennilegir og nánast allir af vilja gerðir. Samt finnst mér þeir ekki sambærilegir sölumönnum í [alvöru] umboðum, enda kann ég vel við þá.




