Sezar wrote:
slapi wrote:
Menn gera sér ekki oft grein fyrir því að það þarf að henda alveg helling af pening í þessar sjöur þá sérstaklega ef þær eru á uppboði.
Það eru bílarnir sem hafa fengið 0 viðhald.
Drifið úr flóðhestinum myndi teljast ónýtt.
Óþarfi alhæfa og stimpla alla uppboðsbíla fyrir lélegt viðhald. Fullt af clean bílum þarna inná milli.
Þessir bílar eru gjörsamlega teknir í nefið af skoðunarmönnum lánastofnanna.
þeir sem eru fengnir til að skoða þessa bíla fá lista yfir það sem á að fara yfir og þurfa að skila nákvæmri útlistun á ástandi bílanna. Lánafyrirtækin fá svo þessar upplýsingar og svo er það undir þeim komið hvað þeir rukka eigandann fyrir.
Skoðunarmennirnir eru oftast bara að vinna sína vinnu eins og þeim er sagt að gera það, en aftur á móti virðast reikningarnir frá lánafyrirtækjunum oft vera ansi vafasamir.
Menn vilja að sjálfsögðu ekki láta hanka sig á að sleppa því að nefna atriði sem eru ekki í 100% lagi í bílunum.