bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 02. Jun 2025 01:30

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 30 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
 Post subject: Í athugun
PostPosted: Tue 19. Feb 2008 14:54 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 11. Jan 2007 10:46
Posts: 126
20"Tommi wrote:
Þetta er mjög einfalt mál ...
Þú kaupir pakka ferð án bils og kaupir svo fragt fyrir bilinn


Ég er að athuga þann möguleika. Læt vita hver útkoman verður:)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 19. Feb 2008 14:55 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
20"Tommi wrote:
Þetta er mjög einfalt mál ...
Þú kaupir pakka ferð án bils og kaupir svo fragt fyrir bilinn


Málið er að þú mátt fara með bíl með þér, borgar skít og kanil fyrir það. En þú mátt ekki koma með bíl heim og borga skít og kanil fyrir það!

Það er óréttlætið. Það er verið að mjólka inn á þessu.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 19. Feb 2008 15:06 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
saemi wrote:
20"Tommi wrote:
Þetta er mjög einfalt mál ...
Þú kaupir pakka ferð án bils og kaupir svo fragt fyrir bilinn


Málið er að þú mátt fara með bíl með þér, borgar skít og kanil fyrir það. En þú mátt ekki koma með bíl heim og borga skít og kanil fyrir það!

Það er óréttlætið. Það er verið að mjólka inn á þessu.


En ef maður fer út með bíl sem að "má" skilja eftir og tekur svo bílinn sem þú ætlar að kaupa með til baka :lol:

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: BORGA
PostPosted: Tue 19. Feb 2008 15:08 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 11. Jan 2007 10:46
Posts: 126
ömmudriver wrote:
saemi wrote:
20"Tommi wrote:
Þetta er mjög einfalt mál ...
Þú kaupir pakka ferð án bils og kaupir svo fragt fyrir bilinn


Málið er að þú mátt fara með bíl með þér, borgar skít og kanil fyrir það. En þú mátt ekki koma með bíl heim og borga skít og kanil fyrir það!

Það er óréttlætið. Það er verið að mjólka inn á þessu.


En ef maður fer út með bíl sem að "má" skilja eftir og tekur svo bílinn sem þú ætlar að kaupa með til baka :lol:


Þá verður þú samt sem áður að borga þeim fyrir reikninginn. Annars færðu ekki bílinn tollafgreiddan.

Þeir eru með ráðandi stöðu á þessum markaði og því er um að gera að kvarta til samkeppniseftirlitsins. Þetta er klárt brot vegna einokunar.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BORGA
PostPosted: Tue 19. Feb 2008 15:54 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Wed 08. Aug 2007 10:31
Posts: 101
bjornod wrote:
Þeir eru með ráðandi stöðu á þessum markaði og því er um að gera að kvarta til samkeppniseftirlitsins. Þetta er klárt brot vegna einokunar.


Hvaða markaði? Markaði fyrir bílainnflutning fólks sem vill sækja bílana sína sjálft? Á meðan skipafélögin flytja inn bíla held ég að það sé ekki hægt að tala um að Norræna hafi einokun á einu eða neinu.

Ekki misskilja mig, þetta er svínslegt, en ég stórefa að þetta sé brot á samkeppnislögum.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BORGA
PostPosted: Tue 19. Feb 2008 16:00 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 11. Jan 2007 10:46
Posts: 126
einarornth wrote:
bjornod wrote:
Þeir eru með ráðandi stöðu á þessum markaði og því er um að gera að kvarta til samkeppniseftirlitsins. Þetta er klárt brot vegna einokunar.


Hvaða markaði? Markaði fyrir bílainnflutning fólks sem vill sækja bílana sína sjálft? Á meðan skipafélögin flytja inn bíla held ég að það sé ekki hægt að tala um að Norræna hafi einokun á einu eða neinu.

Ekki misskilja mig, þetta er svínslegt, en ég stórefa að þetta sé brot á samkeppnislögum.


Þetta er eina skipafélagið sem býður upp á farþegaflutninga ásamt bifreiðum. Þeir geta því verðlagt þjónustuna eins og þeim sýnist. Það kalla ég að vera með ráðandi stöðu á þeim markaði.

Svo er það hlutverk lögfræðinganna að ráð fram úr hvernig þetta er skilgreint. Eflaust er þetta rangt hjá mér, en það er ekki mergur málsins.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 19. Feb 2008 16:46 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Fri 23. Nov 2007 13:40
Posts: 716
Hvaða bull er þetta !!!
Ef þú kaupir af þeim fragt fyrir bilinn þá borgar þú eingann 40 þús.kall fyrir reikninginn.
það er mun ódyrara að ferðast án bíls.
fragt fyrir einn bil að sumar lagi er eitthvað um 50 þús.með reikning
1.kaupa sér klefa báðar leiðir án bils..
2.panta fragt fyrir bil
3.redda tollskýrsugerð.
4.keyra í bæinn.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 19. Feb 2008 18:46 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
20"Tommi wrote:
Hvaða bull er þetta !!!
Ef þú kaupir af þeim fragt fyrir bilinn þá borgar þú eingann 40 þús.kall fyrir reikninginn.
það er mun ódyrara að ferðast án bíls.
fragt fyrir einn bil að sumar lagi er eitthvað um 50 þús.með reikning
1.kaupa sér klefa báðar leiðir án bils..
2.panta fragt fyrir bil
3.redda tollskýrsugerð.
4.keyra í bæinn.


Nei, 40 kallinn er þegar þú ert að koma sem farþegi og tekur bíl með aðra leið í innflutningi. En það er ekkert mikið dýrara að taka bíl með sér út heldur en að fara án hans. Allavega munaði það ekki miklu fyrir skömmu síðan, einhverjum 15þús kalli minnir mig. Það var fyrir báðar leiðir! Finn ekki verðskránna hjá þeim í fljótu bragði, einhver mætti finna út úr þessu.

Það er ekki rökrétt að það kosti minna að flytja bíl báðar leiðir heldur en aðra leið + þessi gífurlega pappírsvinna :roll:

Það er mergur málsins, hvað þeir eru að smyrja ofan á flutninginn heim.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 19. Feb 2008 20:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
Lenti í þessu í haust þegar ég kom með bíl og kerru með ferjunni, þurfti að borga 2x20þ fyrir þessa umræddu pappíra.

Samhliða farþegaflutningum er rekið fraktflutningafélag. Ég held að þeir leigi út fraktina til Blue Water sem er stórt fyrirtæki.
Þetta er sennilega krafa frá fraktdeildinni til að koma í veg fyrir það að þeir "keppi" við sjálfan sig. Þ.e. að ekki sé ódýrara að flytja bíl ef maður fer sem farþegi.
Þetta er alveg út í hróa hött. Þegar við komum heim í haust þá töluðum við alla sem við gátum, bæði í Hanstholm og í Þórshöfn. Fórum á skrifstofu forstjórans útaf þessu og ritarinn hans kom okkur í samband við yfirmann farþegaflutninga og hann sendi okkur á fraktina og fraktin lofaði okkur að græja þessa pappíra. Svo var það allt svikið.
Tollurinn í Reykjavík gat ekkert gert, ekki tollurinn á Seyðisfirði. Töluðum líka við tollinn í Hanstholm.
Við neyddumst til að borga þetta því kostnaðurinn við að vera þarna hefi annars orðið hár með vinnutapi o.þ.h.

Þetta vita þeir allt og þeir spila bara þennan leik. Svo er þessi maður þarna sem sér um Smyril Blue Water fyrir austan með mikinn dónaskap. Við lentum í því að starfsmaður fyrirtækisins svaraði einhverju og svo reyndist það ekki rétt og þegar þetta var borið upp á þá þá bara þrættu þeir fyrir það og létu tímann vinna með sér.
Bæði þegar við vorum með 1,5klst í Þórshöfn og svo á Seyðisfirði áður en tollurinn þar lokaði (Sýslumannsskrifstofan).

Annaðhvort er að fara með svona mál lengra eða bara hætta viðskiptum við svona fyrirtæki og vara aðra við, við fórum þá leið.

Starfsmenn Sýslumannsembættisins á Seyðisfirði voru mjög liðlegir og gerðu allt sem þeir gátu til að hjálpa okkur, tolluðu svo bílinn og allt dótið samdægurs svo við kæmumst heim.

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Arghhhh
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 10:41 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 11. Jan 2007 10:46
Posts: 126
20"Tommi wrote:
Hvaða bull er þetta !!!
Ef þú kaupir af þeim fragt fyrir bilinn þá borgar þú eingann 40 þús.kall fyrir reikninginn.
það er mun ódyrara að ferðast án bíls.
fragt fyrir einn bil að sumar lagi er eitthvað um 50 þús.með reikning
1.kaupa sér klefa báðar leiðir án bils..
2.panta fragt fyrir bil
3.redda tollskýrsugerð.
4.keyra í bæinn.


Þetta er ekki svo einfalt.

Að senda bílinn með frakt er 63.000 krónur. Far fyrir tvo í tveggja manna klefa kostar um 60.000 krónur. Það er því dýrara að senda bílinn með frakt og ferðast "án bíls".

Auk þess reiknar tollurinn með 40Þ í sendingarkostnað ef þú ferð þá leið að ferðast með bílapakka, en 63.000 kr sef hann er sendur með frakt. Þar munar nú aldeilis um það.

s.s ef við reiknu hversu mikið ég borga af flutningi:

Atlantsskip: 115Þ = 95Þ í aðflutningsgjöld -63Þ
Norræna frakt: 65Þ = 52Þ í aðflutningsgjöld -20Þ
Norræna reikn: 40Þ = 32Þ í aðflutningsgjöld m.v ódýrasta

Reiknum dæmið til enda:

Atlandsskip og flug heim (á miða):
Samtals: 1.933.515 + 0 = 1.933.515 ISK

Norræna + frakt:
Samtals: 1.843.252 + 60.000 = 1.903.252 ISK

Norræna + ránsreikningurinn:
Samtals: 1.798.121 + 82.000 = 1.880.121 ISK

Ódýrasta leiðin er því að bóka far með Norrænu, láta taka sig í þurrt, og brosa með tárin í augunum.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 11:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
Þetta munar bara orðið svo litlu að þetta borgar sig alls ekki.
Maður þarf að koma sér til Hanstholm sem er á hjara veraldar og svo frá Seyðisfirði sem er ekki beint í alfaraleið og það kostar líka peninga.
Ásamt því að dúsa í skipinu já og svo tekur dag að koma sér í bæinn, talsvert mikið vinnutap.

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Ferðalag
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 11:40 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 11. Jan 2007 10:46
Posts: 126
Bjarki wrote:
Þetta munar bara orðið svo litlu að þetta borgar sig alls ekki.
Maður þarf að koma sér til Hanstholm sem er á hjara veraldar og svo frá Seyðisfirði sem er ekki beint í alfaraleið og það kostar líka peninga.
Ásamt því að dúsa í skipinu já og svo tekur dag að koma sér í bæinn, talsvert mikið vinnutap.


Sæll

Ef tilgangurinn er einungis að flytja inn bíl, þá er langbest að nota Atlantsskipt. Hins vegar í mínu tilfelli, þá bý ég úti og langar að taka smá ferðalag á leiðinni heim. Vissulega þarf að reikna eldsneytiskostnað og tryggingar inn í dæmið.

Ég þarf um 250 L af olíu sem gera þá um 30.000 kr. Þá sést greinilega að Norrænu leiðin borgar sig engan vegin fyrir þá sem vilja eingöngu ná sér í bíl.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 11:49 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Posts: 2674
Location: Reykjavík
Hvað bjóða þeir (Atlantssk.) flutninginn á í dag ?

_________________
1990 Benz 250D W124


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 16:06 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Fri 23. Nov 2007 13:40
Posts: 716
Jahá ekki veit maður allt...
Ég keyrði bilinn til hansthólm borgaði 36 þús kr,tók lestina til köben og flaug heim.
þetta var nóv.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Ferðalag
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 19:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
bjornod wrote:
Bjarki wrote:
Þetta munar bara orðið svo litlu að þetta borgar sig alls ekki.
Maður þarf að koma sér til Hanstholm sem er á hjara veraldar og svo frá Seyðisfirði sem er ekki beint í alfaraleið og það kostar líka peninga.
Ásamt því að dúsa í skipinu já og svo tekur dag að koma sér í bæinn, talsvert mikið vinnutap.


Sæll

Ef tilgangurinn er einungis að flytja inn bíl, þá er langbest að nota Atlantsskipt. Hins vegar í mínu tilfelli, þá bý ég úti og langar að taka smá ferðalag á leiðinni heim. Vissulega þarf að reikna eldsneytiskostnað og tryggingar inn í dæmið.

Ég þarf um 250 L af olíu sem gera þá um 30.000 kr. Þá sést greinilega að Norrænu leiðin borgar sig engan vegin fyrir þá sem vilja eingöngu ná sér í bíl.


Ég bjó úti, var s.s. með lögheimili þar þegar ég flutti minn bíl heim + kerru, var með búslóðina mína með mér. Og þetta var voða lítið mál með tollarana, fékk bara tímabundið akstursleyfi og tollaði svo bílinn á Akureyri þegar ég var orðinn leiður á sænsku númerunum. Það var reyndar svíndýrt og leiðinlegt, var látinn borga alveg allt of mikið en þeim var ekki haggað, en prísinn með norrænu var ekki svo hræðilegur, bara maturinn um borð :wink: en þetta var líka í febrúar í fyrra.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 30 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 59 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group