Bara svona afþví ég vinn hjá Vöku þá reiknaði ég út hvað mundi kosta að fá Vöku bíl til að ná í bíl til Akureyrar.
Miðað við góða færð og ekkert vesen þá er það um 200 þús kr.
Ég myndi aldrei leggja í það að fara draga bíl með spotta svona langa vegalengd.
Ein "ódýrasta" leiðin er eins og menn hafa verið að tala um hérna, leigja kerru og skutlast sjálfur eftir bílnum.
...bara hafa í huga að láta ekki 1000 kg Yaris draga 1500 kg 3-línu, semsagt passa uppá að dráttarbíllinn meigi og geti dregið það sem hann á að draga. Og ekki gleyma að bara kerran getur verið 300-500 kg.
Svo er ein leiðin að tala við Landflutningar, Flytjanda eða álíka fyrirtæki, án þess að ég viti það nákvæmlega þá held ég samt það sá nálægt 100 þús kr.
Til að bæta aðeins inn í fyrri umræði, þá finnst mér persónulega að ökutækið sem verið er að draga með spotta eigi að vera með hazardljósin á öðrum vegfarendum til viðvörunnar, þótt það sé ekki þeirra megin tilgangur - en ökutækið sem er að draga á alls ekki að vera með hazardljósin í gangi, ég er búinn að sjá allt of mikið af því undanfarið.