Tekið af
http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/st ... tem182260/
"Jarðvélar fá frest til áramóta
Eigendur Jarðvéla eiga langan feril gjaldþrota og vanskila að baki. Þeir hafa enn ekki greitt starfsfólki sínu laun. Starfsmenn fyrirtækisins hafa lagt niður störf vegna vangoldinna launa. Pólskur starfsmaður segir þetta í annað skipti sem hann fái ekki greitt fyrir vinnu sína hjá íslenskum atvinnurekanda. Hann sér nú fram á að fara kauplaus frá Íslandi í annað sinn.
Starfsmenn Jarðvéla segjast enn ekki hafa fengið greitt fyrir störf sín í nóvember, og eru enn í verkfalli. Vinna við tvöföldun Reykjanesbrautar liggur því áfram niðri.
Einn þeirra sem verst hefur orðið úti er Pólverjinn Marek Kusowski. Hann hefur enn ekki fengið greitt fyrir vinnu sína fyrir við Kárahnjúka árið 2005. Þá var hann í vinnu hjá starfsmannaleigunni 2B. Nú er hann aftur kominn til starfa á Íslandi, í þetta skipti fyrir Jarðvélar. Enn gengur honum illa að fá greitt fyrir vinnu sína hér.
Á þriðja tug starfsmanna Jarðvéla hafa leitað til stéttarfélagins Eflingar vegna vangoldinna launa.
Auk þess eru 20 vanskilamál skráð á fyrirtækið á þessu ári. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem eigendur Jarðvéla komast í hann krappann í fjármálum.
Stjórnarformaðurinn, Vilhjálmur Eyjólfsson, er þekktur athafnamaður á Suðurnesjum. Hann var stjórnarformaður verktakafyrirtækisins Stapaverks, sem varð gjaldþrota árið 1993, og stofnandi Súlna, sem urðu gjaldþrota árið 1995.
Nú situr hann meðal annars í stjórn fyrirtækisins Iceland Motopark, ásamt syni sínum, Vilhjálmi Þór Vilhjálmssyni, sem einnig er í forsvari fyrir Jarðvélar.
Fyrirtækið fékk 200 milljóna króna lán frá Byggðastofnun í vor til að byggja upp ökukennslubraut í Reykjanesbraut. Fyrirtækið uppfyllti ekki þau skilyrði sem stofnunin setti fyrir veitingu lánsins, sem var því aldrei greitt út.
Vilhjálmur sat ásamt bróður sínum og móður í stjórn Toppsins, verktaka, sem varð gjaldþrota árið 2003. Mæðginin skipa líka stjórn fyrirtækisins Toppsins innflutnings. Fyrirtækið er enn í rekstri, en er með 48 vanskilamál á bakinu.
Samkvæmt upplýsingum Fréttastofu hafa starfsmenn við Reykjanessbraut að mestu lagt niður störf, en þó ekki að fullu. Þeir vinna, eins og einn þeirra sagði, um 15-20%vinnutímans, en ræða stöðu sína að öðru leyti. Þeir hafa ekki fengið laun sín greidd um all langan tíma. Þá hafa starfsmenn flúið fyrirtækið, einkum Íslendingar, sem hafa getað fengið annað starf. Meðal annars mun yfirstjórnandi verksins, tvöföldunar Reykjanessbrautar, hætta um áramót, en hann kom til starfa á miðju árinu þegar fyrirrennari hans hætti.
Lánardrottnar Jarðvéla ehf eru farnir að ókyrrast og samkvæmt upplýsingum Fréttastofu hafa einhverjir þeirra tekið flutningabíla og vinnuvélar í sína vörslu, þar á meðal einkabifreið framkvæmdastjóra og eiganda fyrirtækisins. Þá hafa Jarðvélar ehf misst stórt verkefni sem það hafði hjá einkafyrirtæki, þar sem ekki tókst að halda því áfram vegna greiðsluerfiðleikanna.
Vegagerðin hefur átt fundi með stjórnendum og eigendum Jarðvéla og gefið þeim frest til áramóta að gera grein fyrir því, með sérstakri skýrslu, hvernig endurfjármögnun fyrirtækisins verði tryggð, þannig að það geti haldið áfram verkinu við tvöföldun Reykjanessbrautar. Tafir hafa nú þegar orðið á einstökum verkþáttum, eins og gatnamótum við Voga, sem átti að vera lokið, og við Grindavíkurafleggjara.
Verkinu í heild á að vera lokið 15. ágúst á næsta ári og gerir Vegagerðin ráð fyrir að sú dagsetning standist, ef verkið kemst á skrið aftur í byrjun nýs árs. Ekki hafa fengist staðfestar upplýsingar um hvað valdi greiðsluerfiðleikum Jarðvéla ehf, sem hafa leitt til þessa ástands."
Flottur ferill hjá þessum köppum.
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...