by Svezel » Thu 12. Jun 2003 19:48
Mér fannst eitthvað undarleg vinnslan hjá mér í gær svo ég fór í gærkvöldi og tók nokkur run einn úti á Granda. Fór svo heim og opnaði húddið og þá fann ég skýringuna: inntakið var þræl heitt.
Þá er það helv... sían, vélin er bara að soga inn sjóðheitt loft og vinnur því ekki sem skyldi. Ég hafði lagt auka barka auk upprunalega inntaksbarkans að síunni en það er ekkert að virka.
Svo nú er næst á dagskrá að redda inntakinu almennilega svo hann fari að virka eins og hann á að gera.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8