Ég er ekki alveg til í að segja hvað ég fékk hann á, enda er ekki alveg mark takandi á því, það á eftir að sjá hvað þarf að gera við hann. Það þarf að taka allt í gegn í honum varðand bremsur, og einnig eitthvað varðandi vélina.
Gæti lent í því að það sé eitthvað major að vélinni, en er að vona ekki
Við getum orðað það þannig, að ef í hart fer og vélin er í spaði, þá ætti ég að geta fengið það fyrir hann í varahlutum sem hann kostaði mig úti. En þá er ég náttúrulega ekki að taka með þann 300.000.- kall sem kostar að koma með hann til landsins.