Ég fyrir mitt leyti er ekki hræddur við akstur sem slíkan. Ég hef átt og keyrt bíla keyrða meira en það "venjulega" og hef ekki átt slæma reynslu af þeim.
Það er nú samt þannig að ég á það til að skipta ört um bíla og þá er oft betra að vera með minna keyrðan bíl. Þannig að ef að ég get valið á milli tveggja eða fleiri bíla þá reyni ég oftast að velja þann minna ekna að því gefnu að báðir séu í sambærilegu ástandi.
Skil samt sem áður vel þessa afstöðu fólks og ég verð að viðurkenna að ef að ég gæti fengið sjálfan mig til að vera á sama bílnum í lengri tíma þá myndi ég örugglega ekki hika við að kaupa mikið ekinn bíl (á réttu verði).
_________________ BMW E46 ///M3 04.2003 Land Rover Discovery 3 04.2007 Ski Doo Summit X 800 151" - 2006 5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
|