Kull wrote:
trapt wrote:
Las grein um þetta á
www.mbl.is um daginn sem ég finn ekki í augnablikinu.
Skýrt var frá því að þegar fólk skoðaði reikningana sína þá pössuðu úttektirnar
ekki við magnið af bensíninu sem það tók. Þegar fólk tók út 5000 krónur og náði
ekki að fylla á bílinn sinn fyrir þann pening þá hafði komið villa sem lét kerfið
taka út það sem það dældi inn á bílinn sinn, t.d. 4500 krónur og plúsaði svo 5000
krónum við, sem var upprunalega upphæðin sem það ætlaði að taka út.
Það var villa sem sýndi tvöfaldar úttektir en heildartölurnar voru réttar þannig að þetta var aldrei tekið tvöfalt, bara sýnt þannig. Held að það hafi ekki verið bundið við bensínúttektir samt.
Þér ætti alveg að vera óhætt að nota kort við bensínúttekt, sérstaklega kredit

Ég hef lent í þessu, ég fyllti bílinn á orkunni og þá er heimild uppá 9000kr tjekkuð á kortið og síðan er tekið út það sem þú dælir fyrir,
hjá mér var tekið bæði 9000kr og
það sem ég dældi fyrir, ca 5000kr.
Ég hringdi bara í orkuna og sagði þeim þetta og þá var mér sagt að þetta myndi lagast en ef ekki þá ætti ég að hringja aftur,
þetta lagaðist ekki og ég hrindi aftur og þá var 9000kr. lagðar inná mig.
Hef alltaf fylgst mikið með reikningunum mínum eftir að ég fylli bíllinn á sjálfsafgreiðslustöðvum.
En annars þá tek ég oftast bensín á þessum sjálfsafgreiðslustöðvum, en fer þó stundum á hinar stövarnar en dæli þó ALLTAF sjálfur

_________________
Jónki
325i ´90 e30 M-techII
320i ´84 e30 Seldur
Vantar þig viðgerð á bílnum S:697-9021
