///M wrote:
Jss wrote:
///M wrote:
ENNNN ertu undir áhrifum áfengis eftir einn bjór ?
Já.
Þú mátt ekki stjórna ökutæki eftir að hafa innbyrt áfengi, þar með máttu ekki heldur setja ökutækið í gang því það þykir sýna ásetning til aksturs.
Persónulega finnst mér það lýsa HEIMSKU að keyra eftir að hafa fengið sér í glas. Sjálfur fer ég eftir því að ef ég er á bíl þá fæ ég mér ekki sopa af áfengi. Að sama skapi, ef ég ætla mér að keyra daginn eftir þá hætti ég drykkju snemma og drekk þá líka minna á þeim tíma og legg af stað meira en 12 klst. eftir að ég fór að sofa þótt ég hafi hugsanlega hætt að drekka jafnvel 3-4 klst. áður en í svefninn var farið.
Það er mjög heimskulegt að keyra undir áhrifum... en mér finnst álíka heimskulegt að segja að allir sem fái sér einn bjór séu undir áhrifum áfengis

Heyr heyr...
Mér finnst þessi þráður lykta allsvakalega af hræsni
Ég viðurkenni að ég hef, eins og ég sagði keyrt þunnur og eftir 1 bjór. Mér þykir skrítið ef að ENGINN af þessum sem skrifað hafa hér og fordæmt þynnkuaksur hafi ekki gert slík hið sama
Ég skal fúslega viðurkenna að það er ekki það sniðugasta í heimi en ég býst við að allir höfum við keyrt mjög þreyttir?
Það er í mínum augum mun hættulegra. Það réttlætir kannski ekki gjörðir mínar en ég tel ekki samasemmerki á heimsku og ábyrgðarleysi
Ég tel mig ekki vera "undir áhrifum áfengis" þegar að ég er búinn að fá mér einn bjór. Ég er nú í þyngri kanntinum þannig að það hefur án efa minna að segja ef að ég myndi fá mér 500ml af bjór á meðan nonni mæjónes úti í bæ sem viktar 50 kg myndi drekka slíkt hið sama
Lögin segja "Bannað er að aka ef maður er 0.50 eða yfir"
Einn bjór fyrir mann eins og mig er uþb 0.21-0.23 prómill skv. doktor.is
Þar af leiðandi gerist ég ekki sekur að ölvunarakstri. Ég skal fúslega viðurkenna að þetta er ekki besta attitúdið varðandi akstur og áfengi en þetta er það sem að viðgengst í íslensku samfélagi.
Enginn kenndi mér að það væri í lagi að drekka 1 bjór og keyra svo, ég byggi það einungis upp á eftirfarandi rökum
1. Ég slævgast lítið sem ekkert við einn bjór
2. Ég er löglegur til að keyra ( enda töluvert undir ólöglegu prómill)
3. Ég tel mig ekki leggja mig né aðra ökumenn í hættu eftir einn bjór
Það náttúrulega gefur augaleið að best er að drekka ekki og keyra svo, sama á við að keyra ekki þunnur. Ég viðurkenni það fúslega
Auðvitað er auðvelt að ráðast á þann sem að viðurkennir slíkan hlut en ég er nokkuð viss að einhver hér hefur gerst sekur um það sama ef ekki verra
Takk fyrir mig
Óskar