Eldsneyti

Hér skal spjalla um BMW.

Eldsneyti

Postby poco » Mon 29. Mar 2004 08:35

Mér datt í hug að athuga, í þessum óþrjótandi banka af brilljant upplýsingum, hvort einhver geti svarað þessari spurningu sem lengi er búin að brenna á mér.
Þekkir e-r muninn á bensíni frá t.d. ÓB og Orkunni og bensíni sem er keypt á Essó og Olís (ég er auvita ekki að leitast eftir svarinu: "það munar 3 krónum;)
Ég hef heyrt svo margar útskýringar, en ekki frá neinum sem veit þetta fyrir víst.
Ég gerðist meira að segja svo grófur að spyrja um þetta á Essó-stöð og svarið sem ég fékk var "ÖÖÖÖ...jaaa...ööö....eeeh...bensínið okkar er BEST" :roll:
User avatar
poco
Kassabílstjóri
 
Posts: 104
Joined: Sat 15. Nov 2003 21:20

Postby flamatron » Mon 29. Mar 2004 08:51

Ég myndi segja að benzínið hjá shell er bezt.. allavega eyðir bílinn minn minna á því benzíni, og það er lélegur hægagangur ef ég nota benzín frá Esso,(sem er sama og olís).
:roll:
Tómas
BMW 325ic '95
Isuzu Trooper '99
User avatar
flamatron
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1387
Joined: Sat 31. Aug 2002 17:41

Re: Eldsneyti

Postby bebecar » Mon 29. Mar 2004 09:03

poco wrote:Mér datt í hug að athuga, í þessum óþrjótandi banka af brilljant upplýsingum, hvort einhver geti svarað þessari spurningu sem lengi er búin að brenna á mér.
Þekkir e-r muninn á bensíni frá t.d. ÓB og Orkunni og bensíni sem er keypt á Essó og Olís (ég er auvita ekki að leitast eftir svarinu: "það munar 3 krónum;)
Ég hef heyrt svo margar útskýringar, en ekki frá neinum sem veit þetta fyrir víst.
Ég gerðist meira að segja svo grófur að spyrja um þetta á Essó-stöð og svarið sem ég fékk var "ÖÖÖÖ...jaaa...ööö....eeeh...bensínið okkar er BEST" :roll:


Ég skal taka þetta að mér.

Bensínið sem þú kaupir hjá Orkunni, ÓB og Esso Express er ekki með bætiefnum í. Bætiefnin komu fyrst á markað hjá Skeljungi fyrir mörgum árum og fékk nafnið Betra Shell bensín ef ég man rétt, Olís fylgdi eftir með Hreinna Bensín eða álíka og MÖRGUM árum síðar fór Essó að blanda bætiefnum í sitt bensín.

Flestir bílaframleiðendur mæla með að keyrt sé á bætiefna bensíni þar sem útfellingar í vélum margfaldast ef alltaf er ekið á óbættu bensíni.

Svo er til V-Power sem er með öflugustu og dýrustu bætiefnum í bensíni hér heima. Það er auðvitað best fyrir bílinn en líka dýrast og skiptar skoðanir um ávinninginn.

Ég tek nánast alltaf annaðhvort V-Power eða 98 oktana hjá Orkunni við eyðistorg. Ég tek stundum 95 oktana ef að verðstríð er í gangi en þá kemst ég ekki einu sinni 300 kílómetra á tanknum þannig að líklega fer sparnaðurinn allur í auka eyðslu.

Semsagt... fyrir utan verðmuninn þá er gæðamunur á bensíninu = engin bætiefni.

Ég tel þessvegna farsælast að fara mína leið eða vera duglegur að taka bætiefna bensín með sjálfsafgreiðslu afslætti í annað eða þriðja hvert skiptið.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby ses » Mon 29. Mar 2004 10:45

Hmm.. Esso og Olís sama bensín?

Minn eyðir minnst á Olís hreint system 3 bensíni..

Hef ekki mikið skoðað shell, né prófað 98/99 oktana.

Annars er þetta alveg rétt sem bebecar segir, þetta er spurning um bætiefni, en t.d. ÓB selja hreint system 3, sem ég er nokkuð viss um að er með bætiefnunum, annars væri þetta bara plain BP 95 oktana, ekki satt?
ses
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 57
Joined: Fri 16. May 2003 13:43
Location: Reykjavík

Postby flamatron » Mon 29. Mar 2004 11:05

ses wrote:Hmm.. Esso og Olís sama bensín?

Esso og olís nota sama dreifingar aðilan, olíudreifingu, sömu bílarnir, sama sullið. :?
Tómas
BMW 325ic '95
Isuzu Trooper '99
User avatar
flamatron
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1387
Joined: Sat 31. Aug 2002 17:41

Postby poco » Mon 29. Mar 2004 11:06

Takk bebecar, þetta hafði ég heyrt áður og staðfestist hérmeð!

En í tengslum við þetta; er e-r sem notar bætiefni eins og STP í tankinn? Einhver reynsla af þessu?
Mér var sagt að það væri sniðugt að nota þetta á bíla komna yfir 100þús.km.
User avatar
poco
Kassabílstjóri
 
Posts: 104
Joined: Sat 15. Nov 2003 21:20

Postby bebecar » Mon 29. Mar 2004 11:20

flamatron wrote:
ses wrote:Hmm.. Esso og Olís sama bensín?

Esso og olís nota sama dreifingar aðilan, olíudreifingu, sömu bílarnir, sama sullið. :?


Bensínið er það sama en bætiefnin ekki, bætiefnunum er bætt útí tankbílana við áfyllingu.

Ég er nokkuð viss um að ÓB er með óblandað bensín.

STP innspýtingar hreinsir kostar um 984 krónur, það er mikið sniðugra að kaupa bara V-Power sem er með akkúrat það sem þú þarft. Ef að verðmunurinn á líternum er 10 kall þá dugar þessi mismunurinn á V-Power og STP brúsanum fyrir tvær tankfyllingar á meðal bíl.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby gstuning » Mon 29. Mar 2004 11:49

Ég tek bara ´99 ef ég kemst í það annars alltaf ´98

löngu hættur að taka ´95,
Tók meira að segja ´98 á Fiatinn
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Haffi » Mon 29. Mar 2004 12:06

ohhh plís ekki önnur benzínumræða =)
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Gunni » Mon 29. Mar 2004 12:09

Ég hef komist að því á mínum að hann kemst _miklu_ lengra á 98+ heldur en 95.
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby gunnar » Mon 29. Mar 2004 12:25

Alltaf gaman að fræðast meira 8)
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Mon 29. Mar 2004 13:28

Haffi wrote:ohhh plís ekki önnur benzínumræða =)


Þú ÞARFT ekki að taka þátt sko :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Austmannn » Mon 29. Mar 2004 14:10

bíddu bíddu, kemst miklu lengar, skilgreindu þetta aðeins meira. Ertu þá að meina vegna þessa sprengikraftur 98 okt er meiri að það þurfi þarafleiðandi minna magn til að komast sömu vegalengd???? :roll:
Gsm 841-1460 :naughty:
In the beginning the universe was created. This has made a lot of people angry and been widely regarded as a bad move."

Eina ástæðan fyrir því að Merc eru betri en Bmw er þetta dæmi með helvítis kasettuna hjá Bmw....wtf
User avatar
Austmannn
Getawaybílstjóri
 
Posts: 573
Joined: Thu 18. Mar 2004 09:42
Location: 700 Egilsstaðir

Postby Gunni » Mon 29. Mar 2004 14:19

ÉG er kannski að ýkja með því að segja miklu, en staðreyndin er þessi:

Ég prófaði að taka 95 á 3 tanka og svo skipti ég yfir á 98 í 3 tanka og ég komst undantekningalaust fleiri km á 98 bensíninu. Ég keyrði bílinn eins á öllum tönkunum. Þannig er það bara. Ég er ekki verkfræðingur, kallaðu þetta tilviljun ef þú vilt :)
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Austmannn » Mon 29. Mar 2004 14:22

Ath, ég er alls ekki að rengja þig, mér þykir þetta bara sniðug pæling. Það sem meira er að það er eðlisfræðilegur grunnur fyrir henni. Spurning hvort það sé hægt að skella þessu í einskonar reiknilíkan.

Þá meina ég.

x þungur bíll
x oktan bensín
x vél/tog/hestar.
= km
Gsm 841-1460 :naughty:
In the beginning the universe was created. This has made a lot of people angry and been widely regarded as a bad move."

Eina ástæðan fyrir því að Merc eru betri en Bmw er þetta dæmi með helvítis kasettuna hjá Bmw....wtf
User avatar
Austmannn
Getawaybílstjóri
 
Posts: 573
Joined: Thu 18. Mar 2004 09:42
Location: 700 Egilsstaðir

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests