Þokuljósanotkun

Hér skal spjalla um BMW.

Notar þú þokuljós innanbæjar?

Poll ended at Thu 20. Nov 2003 13:47

Nei.
20
45%
Já, af því að það er svo töff
17
39%
Já, þegar rignir
5
11%
Já, af því ég kann ekki á takkana í bílnum mínum!
2
5%
 
Total votes : 44

Þokuljósanotkun

Postby oskar » Thu 13. Nov 2003 13:47

Þetta er kannski "boring" spurning en ég var bara að velta fyrir mér hvað þetta væri með Íslendinga og þokuljós.
Þokuljós eru ein ofnotuðustu ljós á bílum á þessu landi.

Það er frekar pirrandi að mæta bílum með öll þessi ljós kveikt, sérstaklega í myrkri. Svo eru líka sumir sem hafa líka kveikt þokuljós að aftan sem er ennþá verra.

Auðvitað er ekkert að því að nota þessi ljós ef aðstæður eru þannig og utan þéttbýlis en innanbæjar á þetta ekki að sjást!

Hvað er fólk að spá??
oskar
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 10
Joined: Sun 08. Jun 2003 21:25

Postby iar » Thu 13. Nov 2003 13:56

Nota þokuljósin aldrei innanbæjar nema þegar fór pera í sumar í aðalljósunum þá setti ég kastarana á og slökkti á ljósunum. Þá er maður amk. löglegur þangað til ný pera er komin í. ;-)

Hafið þið annars tekið eftir því hvað er mikið um bæði eineygða og rangeygða bíla? Hrikalega óþægilegt að keyra á undan og mæta þessum rangeygðu. :x

PS: Hef reyndar einu sinni sett þokuljósin að aftan á innanbæjar, það var þegar ég lenti fyrir aftan þennan sem reykar svona og hefur verið rætt um hér á spjallinu. Þá var maður bara allt í einu inní þykkum reykjarmekki og sá ekkert. Smellti þokuljósunum á til að fá síður einhvern aftan á mig.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby arnib » Thu 13. Nov 2003 14:37

Ég nota þau ekki innanbæjar, en kveiki reglulega á þeim utanbæjar þar sem mér finnst lýsingin þægileg.
Líka þegar ég er að keyra innanbæjar þar sem er ekki upplýst og fáir bílar.

Og mér finnst þeir flottir þannig að ég kveiki ef ég ætla mér að taka flotta mynd :)
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Jss » Thu 13. Nov 2003 15:02

arnib wrote:Ég nota þau ekki innanbæjar, en kveiki reglulega á þeim utanbæjar þar sem mér finnst lýsingin þægileg.
Líka þegar ég er að keyra innanbæjar þar sem er ekki upplýst og fáir bílar.

Og mér finnst þeir flottir þannig að ég kveiki ef ég ætla mér að taka flotta mynd :)


Það er nú bara nokkurn veginn eins hjá mér, nota þá ekki innanbæjar nema ef það er mjög dimmt og inn botnlanga og svona þar sem ýmislegt leynist. :shock:
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Raggi M5 » Thu 13. Nov 2003 15:19

Þegar ég var á Bimmanum notaði ég þau alltaf,allstaðar, sést kannski á þeim myndum sem ég hef sýnt af bílnum, útaf því að mér fannst það bara 100 sinnum flottara :D
Last edited by Raggi M5 on Thu 13. Nov 2003 15:28, edited 1 time in total.
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05


Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
User avatar
Raggi M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3236
Joined: Wed 04. Sep 2002 22:02
Location: Njarðvíkingur!

Postby GHR » Thu 13. Nov 2003 15:26

Sama segi ég. Ég notaði þau alltaf á bimmunum (520-750-325), mér finnst þetta bara flott á öllum bílum!! Ég myndi meira segja nota þau á Eclipsinum en búið að taka þau í burtu svo loft komist betur að intercoolernum :wink:
Síðan finnst mér líka helv.... töff á Mercedes Benz þegar þeir hafa miðjuljósin kveikt (gerði það líka alltaf sjálfur :lol: ) En þau eru samt þokkalega björt
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby Benzari » Thu 13. Nov 2003 19:53

Nota þau oftast bara í myrkri. Ekkert bögg frá löggunni hingað til enda eru þau sambyggð aðalljósunum á mínum bíl eins og þið vitið flest.
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby ta » Thu 13. Nov 2003 20:16

ég nota ekki þokuljós nema við þær aðstæður
sem þeim er ætlað, slæmu skyggni utan þéttbýlis.
annars hef ég ekkert út á það að setja, að aka með
þau alltaf þ.e.a.s. fram-þokuljósin.
en óþarfa aftur-þokuljósanotkun pirrar mig.
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Postby Gunni » Thu 13. Nov 2003 20:29

Ég hef einusinni notað þokuljós innanbæjar, og geri það ekki aftur því ég var sektaður fyrir það :(
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby bjahja » Thu 13. Nov 2003 20:31

Á daginn er ég með stöðuljósin og þokuljósin en í myrkri er ég bara með venjulegu aðalljósin. Það er löglegt að nota þau svona og þau fara ekki í augun á bílum sem koma á móti í dagljósi og síðan finnst mér þetta bara miklu flottara :wink:
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby oskar » Thu 13. Nov 2003 20:34

Sektin hefur líklega komið vegna þessarar greinar í umferðarlögum:

32. gr. [Við akstur vélknúins ökutækis skulu lögboðin ljós eða önnur viðurkennd ökuljós jafnan vera tendruð.]1)
[Við akstur ökutækis í rökkri, myrkri eða ljósaskiptum og þegar birta er vegna veðurs eða af öðrum ástæðum ófullnægjandi, hvort heldur er til að ökumaður sjái nægilega vel fram á veginn eða til að aðrir vegfarendur sjái ökutækið, skulu lögboðin ljós vera tendruð. Ökutæki, sem eigi skal búið ljósum, skal þá auðkennt samkvæmt reglum2) sem dómsmálaráðherra setur.]1)
Nota skal háan ljósgeisla þegar sjónsvið ökumanns nægir annars ekki til að aka örugglega miðað við ökuhraða.
Háan ljósgeisla má eigi nota:
a. þegar ekið er um nægilega vel lýstan veg,
b. þegar ekið er á móti öðru ökutæki, þannig að valdið geti ökumanni þess glýju, eða
c. þegar ekið er svo skammt á eftir öðru ökutæki, að valdið geti ökumanni þess óþægindum.
Nota skal lágan ljósgeisla, þegar ekki er skylt eða heimilt að nota háan ljósgeisla.
[Í þoku, þéttri úrkomu eða skafrenningi má nota þokuljós í stað eða ásamt lágum ljósgeisla. Hjálparljós má eigi nota til annars en þau eru ætluð.]1)
Ljós má eigi nota þannig að valdið geti öðrum vegfarendum glýju.
Eigi má nota annan ljósabúnað eða glitmerki en boðið er eða heimilað í lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim.
Dómsmálaráðherra getur sett reglur um varúðarmerki fyrir reiðmenn og hesta.
oskar
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 10
Joined: Sun 08. Jun 2003 21:25

Postby bjahja » Thu 13. Nov 2003 20:37

Ég var sektaður af því að þá var ég með kveikt á kösturum og aðalljósum.........og þá sagði löggan mér að það væri löglegt að vera með kastara og stöðuljós á daginn en það má ekki í myrkri síðan þá hef ég aldrei lent í veseni með þetta
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Jss » Thu 13. Nov 2003 20:41

Gunni wrote:Ég hef einusinni notað þokuljós innanbæjar, og geri það ekki aftur því ég var sektaður fyrir það :(


Það vill oft vera þannig, "síbrotamennirnir" komast upp með hlutina, þeir sem brjóta einu sinni af sér eru teknir. Annars notaði ég kastarana um daginn þar sem ljósastaurarnir í götunni voru bilaðir og það er svo mikið um krakka í kring, slökkti ekki á þeim strax, lenti síðan á eftir löggunni og fattaði þá að slökkva á þeim og án vandkvæða. :)
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Svezel » Fri 14. Nov 2003 01:16

Hver þarf þokuljós þegar maður er með XENON 8)
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Haffi » Fri 14. Nov 2003 14:06

bleble þokuljósaþursar .... Ég notast bara við þau utanbæjar og þar sem birtuskilyrði eru hýr.
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 40 guests