Var að ræða við hinn víðfræga Hr. X og er að takast að dobbla
hann aftur til Íslands í vor til að græja og gera.
Þetta verður væntanlega í lok apríl.
Þannig að þeir sem hafa áhuga á að láta mappa lurbo projectin sín,
kreista meira út úr grútarbrennurum, delimitera bíla, etc. geta
sent mér póst á thordurm(at)onno.is
Þar sem ég ætla ekki að lenda í því aftur að leggja út fé fyrir
menn sem borga síðan ekki þá verða menn að greiða Hr. X
á staðnum. Ég verð ekki milligöngumaður aftur.
Það eru nú þegar komin nokkrir bílar sem verður unnið í en
síðan er það bara þeir sem eru fyrstir að skrá sig á listann sem
komast að þar sem um takmarkaðan tíma er að ræða.







