ég var að skrá mig hérna og ætlaði að heilsa liðinu og kynna mig kannski aðeins.
eins og sést heiti ég ívar.. á engann bmw hef aldrei átt bmew og hefur aldrei likað við Bmw HA?
en eitthvað fór nú hausinn á mér að rugla uppá síðkastið sem varð til þess að mér hætti að líka þeir bílar sem ég hef haft áhuga á og átt síðan ég man eftir mér en það eru gamlir amerískir muslce-car's og hefur það reyndar valdið mér nokkrum óþægindum þar sem ég veit ekkert hvað ég vill lengur en einhverja hluta vegna er ég að verða rosalega hrifinn af Bmw og þá sérstaklega eftir að ég "kynntist" bebecar og hans bíl..
löngunin til kaupa hans bíl er svakaleg en ég virðist aðeins þurfa að bíða lengur en hann getur beðið
eitt sem hefur vakið athygli hjá mér er að það virðist vera hægt að gera alveg súúúper kaup í 7línu bimmum 95 og uppúr og er ég virkilega heitur fyrir 730-740 sona 95-96.. hefur einhver hérna reynslu af þeim?
en jæja ég ætlaði bara að heilsa... og btw óska ykkur til hamingju með að því virðist vera frábæran klúbb.
kv, íbbi

