Leikdagur no. 5. og 6. á Akstursbraut.is 29.júní og 1. Júlí

Hér skal spjalla um BMW.

Leikdagur no. 5. og 6. á Akstursbraut.is 29.júní og 1. Júlí

Postby Porsche-Ísland » Tue 26. Jun 2007 00:55

Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka , reyna að fá hann bara fyrir allt árið og þá eru tryggingarsölumennirnir lausir við ykkur það sem eftir er árs.

Dálítið bar á því að menn voru að spóla á malarveginum að og frá braut. Ef sést til manna gera þetta aftur þá verða þeir gerðir brottræknir af svæðinu.




En annars er bara stöðluð auglýsing.

Föstudagskvöldið 29. Júní verður leikdagur á Rallykross brautinni.

Brautin verður opin frá 20 og frameftir.

Síðan verður aftur leikdagur Sunnudaginn 1. Júlí og þá frá 10 um morguninn og fram eftir degi.


Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna.

Eknir eru 5 hringir í einu.
Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. / / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
Halldór Jóhannsson
Porsche 944 Turbo S '89
Porsche 924 Turbo '81
Porsche Boxster S '02
Audi A6 Quattro Avant '96
User avatar
Porsche-Ísland
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 409
Joined: Fri 28. Jan 2005 17:47
Location: Reykjavík

Postby xtract- » Tue 26. Jun 2007 00:59

gott framtak, gaman ad fylgjast med svona a fostudagskvoldinu ;d
xtract-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 844
Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Location: Akureyri

Postby arnibjorn » Tue 26. Jun 2007 09:23

Á einhver 15" E30 felgur sem hann vill lána mér? :o :D

Helst ekki á dekkjum... því að ég á fullt af 15" spól dekkjum :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Einarsss » Tue 26. Jun 2007 09:28

Reyni að mæta ef ég get :D
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Aron Fridrik » Tue 26. Jun 2007 09:41

ég verð FRESH á föstudaginn 8)
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby Svezel » Tue 26. Jun 2007 09:59

aronisonfire wrote:ég verð FRESH á föstudaginn 8)


Svona FRESH? :lol:

Flott framtak, reyni að kíkja eitthvað við :)
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Aron Fridrik » Tue 26. Jun 2007 10:14

Svezel wrote:
aronisonfire wrote:ég verð FRESH á föstudaginn 8)


Svona FRESH? :lol:

Flott framtak, reyni að kíkja eitthvað við :)


:rofl:


ég mun vera meira fresh ef eitthvað er :lol: :lol:
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby Danni » Tue 26. Jun 2007 10:16

Dem næturvaktahelgi :( Tek þá bara þátt þarnæstu helgi 8)
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby Steinieini » Tue 26. Jun 2007 19:18

Hefur einhver reynt að fá viðauka fyrir allt sumarið hjá elísabet?

Gekk ekki hjá mér :?
E39 530D ///M Sport
User avatar
Steinieini
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1905
Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Location: RVK

Postby xtract- » Tue 26. Jun 2007 21:41

reyni ad maeta, en adeins til ad fylgjast med, kannski madur heimti hring i lu 230 :D
xtract-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 844
Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Location: Akureyri

Postby Arnarf » Wed 27. Jun 2007 11:06

Hringdi, var ekkert mál að fá tryggingarviðauka sem gildir að 1.sept.

Stendur reyndar
"Ábyrgðartrygging gildir við æfingar og keppni í kvartmílu til 01.09.07..."

Ég spurði hvort þetta gilti þá bara á kvartmílubrautinni, hún sagði nei, gildir líka á akstursbrautinni.
User avatar
Arnarf
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 827
Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48

Postby zazou » Wed 27. Jun 2007 11:22

Arnarf wrote:Hringdi, var ekkert mál að fá tryggingarviðauka sem gildir að 1.sept.

Stendur reyndar
"Ábyrgðartrygging gildir við æfingar og keppni í kvartmílu til 01.09.07..."

Ég spurði hvort þetta gilti þá bara á kvartmílubrautinni, hún sagði nei, gildir líka á akstursbrautinni.


Ég lenti í því sama hjá VÍS, það er eins og það sé ekkert til nema 402 metrar beint áfram í þeirra bókum :lol:
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Einarsss » Wed 27. Jun 2007 11:27

Ég var einmitt að fá trygginga viðauka frá TM og þar stóð
Það staðfestist hér með að ofangreint ökutæki er skyldutryggt við
skipulagðar æfingar á vegum Kvartmíluklúbbsins á Rallýkrossbrautinni
í Hafnarfirði og Kvartmílubrautinni að því gefnu að viðkomandi sé
félagsmaður í Kvartmíluklúbbnum.
Kaskótrygging gildir ekki í ofangreindum tilvikum.


en ég býst við að þetta dugi. Enda tiltekið að ég sé tryggður á rallýkross brautinni í hfj
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Jón Bjarni » Wed 27. Jun 2007 11:52

Hvernig eruð þið að fá viðauka í svona langan tíma?

Ég fæ alltaf sama svarið þegar ég er að byðja um viðauka út árið. þetta erí skoðun hjá okkur :(

Eruð þið að tala við eitthvern sérstakan eða.. og já ég er tryggður hjá TM
Jón Bjarni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 523
Joined: Mon 05. Jun 2006 23:36
Location: Rvk

Postby Erica » Wed 27. Jun 2007 11:55

myndi tala aftur við TM.. einn sem fékk viðauka hjá þeim út árið og var það ekkert vandamál..
RG-779

Nissan 300zx twinturbo project!
Ford F250
User avatar
Erica
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 290
Joined: Mon 28. Nov 2005 21:35
Location: 210

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests