má nú til með að deila,
stóð úti á svölum að grilla þegar ég sé svona líka glæsilegan E65/6 IL bíl leggja á stæðið, virkilega flottur Facelift bíll, ef ég man rétt er þetta 07 ish 730IL bíll,
ég náttúrulega missti tunguna nánast fram af 3ju hæð niður á stæði.. eigandinn var karl alveg í stíl við bílin.
stuttu seinna kemur maðurinn aftur og ætlar að fara, sé kveikna á ljósununum, en án þess að ég sé að veita því athygli þá stendur hann þannig í smá stund, svo sé ég kallin standa út úr bílnum, opna og loka hurðinni, sest aftur inn kveikir á ljósunum, stendur aftur út skellir hurðini og opnar aftur sest inn, þá byrjar bíllinn að blikka ljósunum randomly, framljósunum og stefnuljósunum, svo byrjar hann að reyna starta en bíllinn fer ekki í gang, þá bíður kallinn aððeins, en byrjar svo aftur, bíllinn blikkar öllum ljósum randomly og neitar að fara í gang, þá gefst karlinn upp og fer inn aftur,
stuttu seinna sé ég hann koma út og byrja aftur, og alveg sama sagan bíllinn slekkur og kveikir öll ljós fram og til baka og fer ekki í gang, þá sé ég að karlinn er orðinn semi pirraður og bíður aðeins, og á á meðan blikkar bíllinn greinilega inniljósunum alveg villt og galið á meðan
svo á endanum fór bíllinn í gang,
æji ég veðr nú að viðurkenna að ég hló nú aðeins af þessu, það er ekki alltaf tekið út með sældini að eiga þessa annars yndislegu bíla, og akkurat þetta eintak er nú ennþá alveg rándýrt apparat.
_________________ M.benz E320 Family Wagon Chevrolet Silverado vinnujálkur Chevrolet Silverado skúrajálkur Cadillac eldorado 1973, ísbíll
|