Get því miður ekkert hjálpað með þetta eintak sem slíkt en líst bara ágætlega á hann - leður og afar lítið ekinn. Sýnist á sumum myndanna felgurnar vera dálítið kantaðar þannig um að gera að skoða hann bara vel og mér finnst filmurnar ekki koma nógu skemmtilega út, en lítið mál að redda því. Sanngjarnara verð heldur en maður hefur verið að sjá á E90, sér í lagi þetta lítið eknum.
Spiderman - bara af forvitni, af hverju ertu heitari fyrir 318 bílnum, liturinn eða því hann er yngri? Hef reyndar ekki keyrt E90 318 en grunar að hann sé tja, frekar rólegur á köflum.
