iar wrote:
Gaman að þessu Jóhann! Flott að fá update á þetta.

Mér finnst reyndar vera frekar mikill munur fyrir og eftir bankahrunið.. það fjölgar slatta í lægri upphæðunum..
< 10þ á mánuði 33,9% fyrir hrun en 56,1% eftir. Ef maður gæfi sér einhverjar upphæðir á milli, t.d. 2500 fyrir 0-5000 o.s.frv. þá hlýtur að muna slatta í heildarupphæðunum eða hvað? Maður er kannski farinn að gefa sér of mikið og fylla upp í eyður...
Það er alveg munur en ekki eins afgerandi og ég bjóst við, ýmislegt annað sem kemur þarna inní. Hins vegar er ekki allur textinn þarna þannig að eins og þú segir er munur fyrir og eftir en ekkert í líkingu við það sem ég bjóst við, þá sérstaklega útaf gengisfalli krónunnar.
Vil einnig benda á að það var önnur spurning í könnuninni þar sem spurt var hvort viðkomandi teldi sig eyða minna í bílinn og tengda hluti eftir bankahrun heldur en fyrir. Þarna er í raun verið að spyrja um sama hlutinn tvisvar en á mismunandi hátt þar sem m.a. var gert ráð fyrir mögulegri skekkju í því hvort menn (og konur) myndu rétt upphæðirnar sem eytt væri í bílinn. Skv. þeirri spurningu voru það aðeins 54% sem töldu sig eyða minna í bílinn eftir bankahrun heldur en fyrir.
_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR