Mig vantar nefnilega einhvern til að ganga á lagerinn af spindilkúlum og athuga fyrir mig hvort það er séns að það finnist kúla sem ég get notað.
Málið er að í E34 ix bílana er bara hægt að kaupa alla spyrnuna að framan, þar sem spindilkúlan er í framströttinum. Það er hins vegar hægt að ná kúlunni úr og ég er að gæla við að það finnist kúla sem hægt er að nota.
E36 kúlan er mjög svipuð, en því miður er kónninn á henni ekki eins :/
Allavega.. ef það finnst einhver sem er til í að taka kúluna hjá mér og bera saman við það sem er á lagernum, þá fær hann 5000 kall frá mér
Ef hann finnur kúlu, þá borga ég 10.000.- Fínt til að eyða restinni af hádegismatnum í
