JOGA wrote:
Langar nú ekki að blanda mér í umræðuna á Kvartmíluspjallinu en langar að leggja til umræðunnar hér.
Grundavallar ástæður þessarar tækni "stöðnunar" hjá kananum hvað varðar áframhaldandi þróun á V8 vélunum þeirra liggur að mínu mati í mismun á fyrirtækjamenningu þessara landa og mörkuðum.
Í þýskalandi er það almennt viðurkennt að fyrirtæki eru ekki endilega að reyna að hámarka hagnað hluthafa, heldur sé þar einnig að baki aðrir þættir eins og að vera með bestu og fullkomnustu vöruna og einnig koma oft umhverfisverndunarþættir inn í myndina í ríkari mæli. Einnig er kúnnahópurinn í Evrópu öðruvísi. Meiri krafa um minni eyðslu og meira kompakt bíla almennt. Þetta hefur að mínu mati þrýst á frekari þróun í skilvirkni og skapað ákveðna samkeppni meðal aðal framleiðenda í Evrópu. Þetta hefur svo skilað sér í "Performance" vélar með svipuðum hætti.
Í bandaríkjunum er algengara að fyrirtækin setji hagnað og skammtímahagsmuni aðeins framar í forgangsröðunina. Meðal annars vegna mikils þrýsting frá fjárfestum (í Þýskalandi / Ítalíu er mun meira um fjölskyldufyrirtæki). Þar er einnig ótrúlega ódýrt bensín, breiðir og miklir vegir og menning sem er hliðholl stórum og miklum bílum. Einfaldlega ekki sami hvati til að þróa vélarnar með sama hætti. Stórar V8 sleggjur hafa einfaldlega einfaldlega verið það sem kúnnarnir eru vanir og vilja.
Þetta er auðvitað mikil einföldun og erfitt að koma því til skila sem ég er að hugsa en mér finnst þetta í það minnsta líkleg skýring á tæknimismuninum á milli þessara landa. Held að ef kaninn vildi gera tæknilega fullkomna vél. Þ.e. ef hann teldi það svara (skammtíma?) kostnaði þá myndu þeir vera fullkomlega færir um að gera góða vél. Mikil þekking og kunnátta til staðar í þessu stóra landi.

N.B. Þá hef ég mjög gaman að amerískum sleggjum og væri vel til í fallegan Vöðva bíl til að leika mér á og sjæna.
Þetta var innlegg í lagi. Þú kemur þarna inn á mjög mikilvæga ástæðu fyrir því afhverju þessar vélar hafa ekki verið sambærilegar, einmitt allt annar kúltúr á bakvið þetta allt.
Það ætti engin að afskrifa kanana. Þeir eru fullfærir um magnaða hönnun ef þeir þurfa þess. Það gæti einmitt verið forvitnilegt að sjá hvað myndi gerast í USA ef þeir færu að framleiða fyrir erlendan markað að einhverju ráði en líkurnar á slíku gætu aukist á næstu árum þar sem innanlands markaður stefnir hraðbyri í "ground zero".
Með þrasið - þá er þetta þras ekki ólíkt öðrum þrösum sem koma upp á öllum spjallsíðum, þó kannski heldur stóryrtara og tilfinninga hitinn ívið meiri... Fyrir mitt leiti þá snýst spjall um að hafa gaman og læra smá nýtt. En ef þetta hættir að vera gaman þá hverfur maður af spjallinu. Línan á milli þess að boða fagnaðarerindið annarsvegar og njóta samfélagsins hinsvegar er hárfín. Stundum er betur heima setið en af stað farið... en stundum ekki
