Sá enga auglýsingu neinstaðar þannig að ég ákvað að henda þessu hérna inn.
Gunnar H. wrote:
Það verður Drift æfing á brautinni við Krýsuvíkurveg Föstudagskvöldið 25. júlí. Æfingin byrjar kl 19:00 og líkur kl 22:00. Æfingin er í umsjá Rallycrossdeildar AÍH.
Fyrirkomulagið verður með svipuðu sniði og áður hefur verið:
Einn bíll keyrir í einu á brautinni
Hver bíll keyrir 5 hringi í einu
Það sem þarf til að mega keyra:
Hjálmur
Tryggingarviðauki fyrir akstur á Rallýkrossbrautinni
Gilt ökuskírteini
Bifreiðar verða að vera skoðaðar
Greiða þarf 1000kr innan félags, 1500kr utan félags fyrir æfingar.
Vilji menn ganga í félagið er hægt að finna þær uppl. hér.
http://rca.forumcircle.com/viewtopic.php?t=27 Ef menn greiða í gegnum heimabanka þá endilega hafa með sér kvittanir. annars virka beinharðir seðlar líka vel.
ATH: þeir sem ætla að taka myndir í brautinni verða að koma og tala við okkur fyrst, að öðrum kosti verður þeim visað úr brautinni.