Ég fékk sent bréf í póstinum í gær sem er merkt:
Tilkynning um sendingu frá útlöndum
Þarna eru einhverjar upplýsingar um sendinguna, þyngd, dagsettning o.s.fl.
Ég pantaði mér framstuðara, K&N Síu og M6 felgur. Þetta sem er komið er síann.
Hún var send á undan vegna þess að þeir áttu sjálfir eftir að fá stuðarann og felgurnar en það er í sendingu núna.
Ég borgaði þetta allt saman á einu bretti í gegnum paypal, þess er þetta allt saman á sama reikning.
Allaveganna, þessi tilkynning er að biðja mig um upplýsingar um sendinguna sem ég á að senda þeim í tölvupóst eða faxi sem er svohljóðandi:
Til að tollafgreiða sendinguna vantar okkur upplýsingar frá þér!
Sendu okkur tölvupóst á tollmidlun@postur.is
*Settu viðtökunúmerið í efni (subject)
*Láttu vörureikning fylgja (sýnir verðmæti innihalds og flutningskostnað)
*Láttu staðfestingu á greiðslu fylgja
*Láttu 'item' númer frá Ebay fylgja
Eða sendu okkur fax bla bla bla....
Getur einhver aðstoðað mig hvað ég á að senda þeim nákvæmlega, ég er ekki svo klár á þetta
Takk kærlega
-Jónas