slapi wrote:
Veit um einn flottan 4.8i ameríkutýpu í mint ástandi
2003-2004 bíll , geymdur í skúr og einungis tekinn út nema það hafi verið þurrt í 10 daga liggur við.
Flottasti X5 sem ég hef séð, og hann er með öllu sem hægt er að vera með.
Var að smyrja þennan bíl einu sinni og held að eigandinn sé tannréttingarsmiður og hann stóð yfir mér allann tímann og fór yfir allt sem ég gerði.og lá við að hann hafi fengið flogakast þegar hann sá að pakkningin á olíusíunni væri byrjuð að smita. Það er ekki punktur á bílnum og ég held að börnin hans fái ekki einu sinni að koma nálægt bílnum.
Búinn að setja lök á sætin og klæða bílinn að innan svo ég myndi ekki skíta hann út ( eins og það hafi komið einhverntímann fyrir mig).
Heavy fínn gaur en svakalega nákvæmur.
Bætti 0.1L af olíu á hann í endann því það vantaði hnífsnögl uppá að það væri á Max.
Elska svona gaur
Gaman þegar menn virða eigur sínar.
Tek einmitt mikið eftir eldgömlum toyotum og mözdum hérna frá svona 85 sem líta út eins og nýjar hér á Akureyri. Bílarnir ryðga ekki neitt hérna og gömlu karlarnir eru duglegur að bóna þessari tíkur.
