Angelic0- wrote:
það er svo erfitt að segja að bíll sé með öllu

Hefuru opnað pöntunarbækling fyrir nýjan BMW

Hann er vel þykkur og verður bara þykkari eftir því sem talan hækkar 1-3-5-7

En vel loaded E36 M3.... eigum við að segja 1998-1999 ekinn þetta færi aldrei á minna en svona 1400þ ef að ég giska gróflega

Þetta er einmitt svo algengt hjá mönnum.. Sérstaklega traustum Toyota eigendum. Þeir auglýsa BMW bíla með
Öllu, og þá er það að megninu til staðalbúnaður sem menn telja til.
Og ósjaldan sem menn seigja "rafmagn í öllu" og svo spyr maður:
Er rafmagn í sætum? svar: nei
Er rafmagn í stýri? svar: nei
Er rafmagn í gardínu? Svar nei
Er rafmagn í aftursætum? Svar nei
Er rafmagní baksýnisspeigli? svar nei.
... í hverju er þá rafmagn ? Svar: rúðum, hliðarspeiglum og topplúgu...
Það sem maður fær sem staðal í 1998 540 var sjálfsagt ekki einusinni til sem optional extra í 1998 carinu.. Og kanski þessvegna líður þeim einsog kóngum í grunntýpu af E39...
Annars hlítur off topic police að koma fljótlega að sparka í rassin á mér.. En þið náið pointinu!
