bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 24. May 2025 22:56

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 12 posts ] 
Author Message
 Post subject: Viðskipti
PostPosted: Thu 30. Mar 2006 03:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
Jæja Kæru BMW Krafts Meðlimir


Ég hef spurningu sem ég þarf að bera undir ykkur og ykkar álit á einu máli

Kaupandinn (Grétar)

Seljandi (Gvendur)

Hérna kemur það. Grétar er að leita sér að læstu drifi í bílinn sinn. Gvendur er að selja eitt slíkt. Grétar talar við Gvend um kaup á læsta drifinu og niðurstaða kemst í málið. Grétar borgar Gvendi 15 þús fyrirfram fyrir drifið og ætlar að borga 30 þúsund um mánaðarmótin og þá fær hann drifið einnig afhent. Núna er Grétar búinn að borga Gvendi 15 þúsund og býður mánaðarmóta til að geta borgað restina.


Svo kemur babb í bátinn nokkrum dögum fyrir mánaðarmót skemmir Gvendur læsta drifið sitt sem er í hans bíl æjæj.

Svo Gvendur hringir í Grétar og segir honum að hann fái ekki drifið þó að hann væri búinn að borga 15 þúsund fyrir það. Gvendur segir við Grétar að hann þurfi sjálfur að nota drifð útaf hann hafi skemmt sitt drif.

Gvendur segist ætla að borga Grétari þessi 15 þúsund og nota drifið sjálfur.

Svo maður spyr sig þar sem Grétar var búinn að borga þessi 15 þúsund og Gvendur búinn að fallast á að lokagreiðsla yrði um mánaðarmótin.

Hefur Gvendur rétt á því að nota drifið sjálfur og endurgreiða Grétari 15 þúsund þrátt fyrir að Grétar hafði staðið við allt sitt hingað til.

Með von um góð svör Kveðja:
Ingólfur Pétursson


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Mar 2006 04:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Sæll Grétar :lol:

Það eru held ég ekki til nein lög eða neitt sem styðja þig þarna, þar sem þetta er bara orð á móti orði. Vertu bara sáttur að hann borgi þér 15 þús kallinn til baka.
:wink:

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Mar 2006 04:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
ég á engan þátt í þessu máli :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Mar 2006 06:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Grétar fær þó penininginn sinn til baka, í staðinn fyrir að borga og svo kemur "babb í bátinn" og hann bara óheppinn, 15þús kalli fátækari og ekkert drif og þarf bara að gjöra svo vel að finna sér annað.

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Mar 2006 09:06 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
fyrst að hann borgaði fyrirfram þá finnst mér að hann ætti að fá að borga rest og eiga drifið sem er í lagi,

hinn á 45k til að kaupa sér drif!!

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Mar 2006 09:22 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
gstuning wrote:
fyrst að hann borgaði fyrirfram þá finnst mér að hann ætti að fá að borga rest og eiga drifið sem er í lagi,

hinn á 45k til að kaupa sér drif!!
Einmitt, hann er búinn að festa sér drifið.

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Mar 2006 09:25 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Posts: 1117
Location: Hafnarfjörður
Það er klárlega kominn á samningur á milli þessara tveggja manna þar sem ekki eru gerðar formkröfur til samninga í íslenskum rétti, þ.e. munnlegir samningar eru jafngildir skriflegum. Þar sem fullgildur samningur var kominn á, þá getur Grétar krafist efnda in natura, þ.e hann getur krafist þess að Gvendur efni samninginn samkvæmt aðalefni samningsins þ.e að hann afhendi drifið um næstu mánaðarmót.

Niðurstaðan er því sú að:

Gvendur er bundinn af samningnum á grundvelli samningaréttar og getur Grétar krafist efnda in natura, riftun af hálfu seljanda er ekki inní myndinni þar sem hann getur afhent drifið, svokallaður almennur ómöguleiki til afhendingar er hér ekki til staðar.

_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Mar 2006 09:27 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Spiderman wrote:
Það er klárlega kominn á samningur á milli þessara tveggja manna þar sem ekki eru gerðar formkröfur til samninga í íslenskum rétti, þ.e. munnlegir samningar eru jafngildir skriflegum. Þar sem fullgildur samningur var kominn á, þá getur Grétar krafist efnda in natura, þ.e hann getur krafist þess að Gvendur efni samninginn samkvæmt aðalefni samningsins þ.e að hann afhendi drifið um næstu mánaðarmót.

Niðurstaðan er því sú að:

Gvendur er bundinn að samningnum á grundvelli samningaréttar og getur Grétar krafist Efnda in natura, riftun af hálfu seljanda er ekki inní myndinni þar sem hann getur afhent drifið, svokallaður almennur ómöguleiki til afhendingar er hér ekki til staðar.


Þú ert ekkert í lögfræði eða neitt þannig er það nokkuð? :lol:

En þetta er alveg rétt hjá þér, samkomulagi hefur verið náð og því á að fylgja eftir.

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Mar 2006 10:03 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Munnlegir samningar... jú þeir eiga að vera jafn bindandi og skriflegir skv íslenskum lögum. Ómögulegt samt að krefjast þess að þeir séu efndir.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Mar 2006 10:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
fart wrote:
Munnlegir samningar... jú þeir eiga að vera jafn bindandi og skriflegir skv íslenskum lögum. Ómögulegt samt að krefjast þess að þeir séu efndir.


Nákvæmlega... works in theory, not in practice.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Mar 2006 11:05 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Grétar á sinn rétt að fá drifið, hinsvegar ef ég væri Grétar þá myndi ég bara fá mínar 15.000kr til baka og kaupa mér drif annarstaðar frá.
Myndi ekki vilja skilja manninn eftir driflausan :lol:

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Mar 2006 14:34 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Posts: 865
Location: Höfuðstaðurinn
Spiderman wrote:
Það er klárlega kominn á samningur á milli þessara tveggja manna þar sem ekki eru gerðar formkröfur til samninga í íslenskum rétti, þ.e. munnlegir samningar eru jafngildir skriflegum. Þar sem fullgildur samningur var kominn á, þá getur Grétar krafist efnda in natura, þ.e hann getur krafist þess að Gvendur efni samninginn samkvæmt aðalefni samningsins þ.e að hann afhendi drifið um næstu mánaðarmót.

Niðurstaðan er því sú að:

Gvendur er bundinn af samningnum á grundvelli samningaréttar og getur Grétar krafist efnda in natura, riftun af hálfu seljanda er ekki inní myndinni þar sem hann getur afhent drifið, svokallaður almennur ómöguleiki til afhendingar er hér ekki til staðar.


Meginreglan er sú að samninga skuli halda (pacta sunt servanda)

En þrátt fyrir að engar formkröfur séu gerðar, hvílir sönnunarbyrðin á þeim er heldur því fram að samningur hafi komist á. sbr. 1. mgr. 91. gr. laga um lausafjárkaup nr. 50/2000.


Saxi

_________________
Saxi


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 12 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group