Er með til sölu frábæran bíl, BMW 330xi touring. Hefur reynst snilldarlega þennan veturinn með fjórhjóladrifið, nógur kraftur, sportlegur en jafnframt fjölskylduvænn og bara góður bíll í alla staða. Er búinn að fá mér stærri vagn vegna stækkandi fjölskyldu og því verður þessi að fara sem fyrst. Helstu upplýsingar:
- Nýskráður 09/2001
- Ekinn 160þ km
- Svartur
- 231 hö / 300 Nm
- Beinskiptur
- Svört leðurinnrétting
- Lúga
- Rafmagn og minni í öllu þ.e. sætum, speglum
- Fjarstýrðar samlæsingar (minni pr lykil, 2 lyklar fylgja)
- Sportinnrétting
- 17" álfelgur á nýjum heilsársdekkjum
- Regnskynjari
- Xenon ljós með þvottakerfi
- GSM sími m. handfrjálsum búnaði í gegnum hljómflutningstæki
- Aðgerðarstýri
- Skriðstillir
- Aksturstölva
- Skíðapoki
- Harman/Kardon hljóðkerfi
- CD spilari, aux tengi (fann það reyndar bara um daginn og hef ekki prófað það)
- Þokuljós
- ABS / DSC / HDC
- Hiti í framsætum
- Eyðsla innanbæjar 13,5-15,5L/100km fer eftir akstri og færð. Utanbæjar 8-9L/100km
- ofl
Myndir má sjá hérna:
MYNDIR
Ástand:
Bíllinn kominn í gegnum ca 200þ króna viðgerðir hjá TB. Skipt hefur verið um spindla báðum megin að framan, balance stangir, gorma að aftan og mest allt endurnýjað í bremsum ofl.
Verðið er 1900þ , staðgr., skiptiverð væri talsvert hærra. Held þetta sé klárlega mjög gott verð. Skoða skipti og þá helst á ódýrari.
EDIT 6.10: Bíllinn fer á lægra verði, bara bjóðið - skoða allt.