Árgerð 1997.
Ekinn ~185 þúsund.
Vélin er M52B20, 150 hestöfl og togar tæp 200 newton.
Steptronic sjálfskipting, 5 þrepa.
Rafdrifin topplúga.
Bíllinn er dökkblár að utan sem innan. Röndin þvert yfir innréttinguna er einhvern veginn carbon grá. (plast renningur sem er svo oft viðarlita)
Í sætum er rafdrifin stilling fyrir mjóbak, veit þó ekki hvort það sé aukabúnaður eða ekki.
17" álfelgur, man ekkert hvaða framleiðandi en þær eru með BMW miðjum.
Kastarar eru á bílnum, en þó er annað glerið brotið, á eftir að kippa því í lag.
Í bílnum er Nokia GSM sími, nota hann mjög mikið. Þarf bara að stimpla inn númer og hringja, tala svo á speaker.
235/45R17 dekk, búið að keyra um 5 þús km á þeim, s.s. í flottu ástandi.
Undir bílnum eru boraðir og rákaðir bremsudiskar, framan og aftan.
Þið afsakið að þetta er eina myndin sem ég á af honum á tölvuformi, á eftir að fá mér digital vél.

(ég veit, Samsung síminn er að rokka

)
Bíllinn er fluttur inn 2001 ef ég man rétt, þá ekinn milli 120 og 130 þúsund. Alltaf fengið toppviðhald.
Eyðslumælingar hafa sýnt að bíllinn er að eyða 11.3 - 11.6 lítrum á 100km. Alveg hægt að gera betur ef menn hafa áhuga á því.
Ástæðan fyrir sölunni er sú að mig langar í beinskiptan BMW, misjafn er smekkur manna.
Það er áhvílandi lán á bílnum, ca. 700k.
Þetta er virkilega góður bíll sem enginn á eftir að vera vonsvikinn af. Skoða skipti(sérstaklega á beinskiptum E39), upplýsingar í PM.