Hef til sölu fallegan E85 BMW Z4.
Kemur á götuna árið 2005. Ég hef átt hann síðan maí 2012.
Upplýsingar um bílinn:
2.5L M54B25 sem skilar um 190 hestöflum
Ekinn 136.000 km.
5 gíra beinskipting
Ljóst leðuráklæði
Hiti í sætum
Þokuljós
Halogen framljós
Loftkæling
Bakkskynjarar
Vindhlíf
17" BMW álfelgur
Ásamt því er bíllinn með svokölluðum "hardtop-vorbereitung" sem þýðir einfaldlega að hann er með allan nauðsynlegan búnað fyrir hardtop.
Örfá atriði sem þarf að gera við bílinn:
- Einn bakkskynjarinn er kaput. Þ.a.l. virkar kerfið ekki. Þeir eru þó ekki dýrir.
- Lítil skemmd er á afturstuðara.
- Rafstýring spegla er óvirk. Þetta er bilun í takkaborðinu sjálfu og er minniháttar vandamál að laga.
- Lítil saumspretta í farþegasæti.
- Vantar ekta Z4 mottur í hann.
- Rafdrifin blæja er ekki virk. Þetta er útaf galla sem hrjáir nánast allta pre-2007 Z4. Fyrir þá sem vilja fræðast meir um það er hægt að hafa samband við mig. Blæjan er seld sem handvirk og tekur um 10s að setja hana upp eða niður og er það mjög einfalt fyrir einn að gera það.
Þetta er nokkuð tæmandi listi yfir þá galla sem ég veit að hrjá bílinn. Hann hefur reynst mér ótrúlega vel og góður í rekstri. Z4 notar sömu parta og E46 / E90 og er mjög einfalt að nálgast flesta varahluti hér á landi. Eyðsla innanbæjar er um 10.5L/100km skv. mínum mælingum. Allt viðhald hefur verið unnið af Eðalbílum og ef menn vilja komast yfir viðgerðasögu bílsins er þeim frjálst að hafa samband við mig.
Z4 er án efa einn skemmtilegast akstursbíll sem ég hef átt og ekið. Hann kann að vera aðeins 190 hestöfl, en hann skilar þeim vel og steinliggur á veginum. Hér er á ferð góður bíll sem hefur fengið gott viðhald hjá bestu mönnum sem völ er á. Í minni eigu hefur aldrei verið þjösnast á honum og því má ganga að því vísu að þetta er ekki spólbíll sem hefur fengið harða meðferð.
Fátt skemmtilegra en að keyra á þessum á björtum degi með toppinn niðri, en hann er fær í öllu veðri. Það lekur ekki dropi í gegnum blæjuna.
Ásett verð: 2.800.000 kr.
0 kr. áhvílandi.
Tilbúin til að skoða skipti á ódýrari.
Hafið samband við mig hér, í síma 823-2490 eða í gegnum steinidj(hjá)gmail.com