-Siggi- wrote:
Hvaða bjánar eru þetta sem eru að skoða þetta fyrir þig ?
Það á auðvitað að vera 12v á B
Hinn vírinn er L eða hleðsluljósið, sem er greinilega í lagi þar sem ljósið virkar hjá þér.
Ég skil ekki til hvers þeir eru að mæla þarna á milli.
Alternatorinn þarf bara að fá 12v í gegnum peruna til að byrja að hlaða.
Slappi var aðeins að hjálpa mér með þetta í gær.
Spurningarnar eru þessar.
1. á ég að fá jörð út úr L vírnum ef ég tengi hann við B? Þannig er það núna.
2. ef ég mæli úr L í jörð með
svissað af fæ ég 0Volt
3. ef ég mæli út L í jörð með
svissað á fæ ég 0.2Volt og þess vegna byrjar alternatorinn væntanlega ekki að hlaða því að triggerinn er ekki nógu sterkur.
Sem dæmi þá hlóð bíllinn ekkert þegar ég setti fyrsta alternatorinn í, en eftir að ég revaði aðeins byrjaði hann að hlaða 14volt, svo þegar ég setti aftur í gang var hann aftur dauður, en þegar ég keyrði niður á verkstæði fór hann stuttlega aftur í 14Voltin.
Það gæti verið eitthvað 4000rpm trigger á þessu einhverstaðar, eða,, þegar ég reva upp nær vírinn contacti.
Okkur grunar að það sé eitthvað að L vírnum, að hann sé shortaður einhverstaðar því að hann gefur ekki 12v ef hann er tengdur í jörð með svissað á.