Enn einn E28 bíllinn í safnið
Ég er búinn að hafa augastað á þessum bíl svolítið lengi. Vissi af tilvist hans í amk 2-3 ár....
Komst svo á snoðir um hann í sumar þegar ég fann hann á Stokkseyri. Var svo ekki búinn að kafa
nógu lengi í leit að nafni á eigandanum. Svo féll þetta í pínu dvala fram á vetur....
Alveg þangað til mér var bent á nafn eigandans fyrir 3 vikum síðan
Ég hafði samband og jújú, bíllinn til sölu fyrir rétt verð.
Saga bílsins er nokkurn veginn svona....
1982 - Í október það ár er þessi bíll framleiddur. Þetta er USA bíll og var hann sendur þangað.
1993 - Þann 9. september 1993, þá skýtur þessi bíll upp kollinum á herstöðinni á Keflavíkurflugvelli, þar sem hermaður hafði tekið hann með sér þangað.
1996 - Innandeildarviðskipti eiga sér stað, hermenn skiptast á bílnum og verður hermaður no 2 eigandi.
1997 - Hermaður no 2 flytur af landi brott og bíllinn fer í hendurnar á Sölu Varnarliðseigna.
Númeraplötur eru innlagðar og bíllinn tekinn af götunum.
1999 - Af einhverjum ástæðum á sala varnarliðseigna bílinn í rúmt eitt og hálft ár.
í Maí 1999 eignast svo bílinn maður að nafni Högni B Jónsson.
Mér skilst að Högni hafi rekið sitt eigið bílaverkstæði og dundað sér í bílnum lengi vel.
Keypt nýja hluti, tekið hitt og þetta í gegn o.s.frv.
Högni skipti út USA stuðurum að framan og aftan.
USA framljósin og grill eru þó ennþá á bílnum.
Aldrei tókst honum Högna þó að komast svo langt með verkefnið að koma honum á númer og götuna aftur.
2003 - Högni heitinn fellur frá. Bíllinn fer inn í dánarbú hans og verður til sölu. Þá eignast bílinn Gunnlaugur Ásgeirsson á Stokkseyri. Mikill BMW maður þar á ferð. Átti um tíma 745i E23 Turbo, E28 528i og MARGA fleiri....
Gunnlaugur heldur áfram með þennan 533i, kaupir enn fleiri hluti í hann, lætur meðal annars heilmála bílinn nokkrum árum seinna.
Einhversstaðar þarna á hans eigendaferli, skiptir hann um vél í bílnum. Tekur M30B32 vélina upp úr og setur ofan í M30B28, úr 528i bíl sem hann reif, ekki ekinn nema 120.000 km.
Ég veit ekki nákvæma ástæðu en M30B32 vélin var í lagi þegar hún fór upp úr.
Sennilegast hefur hann ætlað að endurnýja ýmislegt í M30B32 vélinni.
Ekki tókst Gunnlaugi þó heldur að klára bílinn í þannig ástand til að hann setti á hann númer og á götuna.
2008 - Ég sæki bílinn á Stokkseyri þann 12. desember og kem honum fyrir í E28 safninu mínu.
Með í för voru Stefán (Stefan325i) og Sævar (SævarM) og eiga þeir þakkir skilið fyrir að nenna með mér.
Við tókum bílinn í Keflavík á bílakerru, þótt hann hafi verið keyrður upp á kerruna.
Í augnablikinu er bíllinn ennþá með M30B28 vélina ofan í, en annað hvort set ég upprunalegu vélina, M30B32 aftur ofan í,
eða M30B35 sem ég á inn í skúr. Sama gildir um sjálfskiptinguna, hún er ennþá í bílnum....en eins og margir vita,
þá á ég beinskiptan kassa á M30
Stefnan mín er að klára að púsla bílnum saman, það er búið að taka ýmsa hluti úr klæðningum hér og þar og endurnýja,
sem á svo eftir að raða saman aftur.
Það fylgir honum óendanlega mikið af hlutum og þar inn í leynist fullt af nýjum hlutum sem verður gaman að púsla þeim öllum saman.
Samkvæmt öllu þá stefni ég að því að koma honum á númer og út að keyra Vorið 2009.
Nánari lýsing á tækinu:
BMW 533iA E28 - USASkráður 09.09.1993 á Íslandi.
Framleiddur í Október 1982 samkvæmt BMW
M30B32 mótor
Ekinn 169.000 mílur á M30B32 mótornum.
Sjálfskiptur, 4HP22
Litur er annað hvort Bronzitbeige-metallic eða Bahamabeige-metallic, miðinn er horfinn.
Síðast skoðaður 23.10.1996
Bíllin var afskráður þann 27.11.1997 "Afskráð - Að beiðni yfirvalda", þegar Sala Varnarliðseigna selur bílinn.
Hann er í dag enn skráður sem Varnarliðsmannaökutæki og þarf að láta endurskrá hann.
Hann þarfnast endurskráningarskoðunar og að láta breyta notkunarflokk í Fornbíl, þar sem hann er orðinn 25 ára gamall.
Það gerist ekki fyrr en ég er búinn með bílinn, sem verður vonandi með vorinu.
Aukabúnaður:Cruise control
Tvívirk rafmagns topplúga
Rafmagn í öllum rúðum
Rafmagn í speglum
Loftkæling A/C
Svört leðurinnrétting og leðursæti, comfort.
Kastarar í framsvuntu
Pfeba hliðarsílsar
Pfeba aftursvunta
Eflaust eitthvað fleira, en fæðingarvottorð verður að skera úr um það.
Bíllinn er núna á 390mm TRX felgum, 200/60 VR 390 Michelin dekkjum. Nóg eftir af munstri
Myndir teknar í dag, 12. desember 2008 þegar við sóttum bílinn.
Á Stokkseyri að sækja hann.....
Komnir á Selfoss í hádegismat
Ferðafélagarnir....Stefán og Sævar
Komnir á leiðarenda, Keflavíkin góða
Tekinn einn prufurúntur
Svo eru hér myndir teknar í sumar þegar ég var á Stokkseyri að leita eftir honum....
Svo er ekki verra að þetta fylgir með....
16" OEM ALPINA felgur.
Reyndar bara 3 stk, ein er brotin