Jón Ragnar wrote:
Hver er verðhugmyndin?
Fór ásamt Skúra-Bjarka á laugardaginn að kíkja á þennann margumtalaða M3,,
Útlit bílsins,, er merkilega gott,, en búinn að standa úti í allann vetur..
þar áður var bíllinn í upphituðum skúr frá árinu 2000
Gríðarleg vinna er framundann í bílnum ,, en hann er með öllu óökuhæfur að mínu mati,,
ALLAR fóðringar með tölu þarf að endurnýja,,
Allar bremsur þeas diskar þarf einnig að skipta út.. jafnvel ABS skynjarar
klossar og pakkningar
Teppinn eru hlandblaut undir og fullt af ryði undir þeim .. allavega frammi í ,, ekkert alvarlegt en gæti þurft einhverja aðgerð
búið er að strípa bílinn komplett,, ekkert mælaborð,, engin sæti osfrv..
Miðstöðvar elementið sprakk í vetur og fylgir nýtt með,,
Sætin eru í mjög góðu ástandi en eðlilega þarf að snýta þeim hressilega,, og er það ekki sérlega kostnaðarsöm upplyfting
Hurðin farþega megin er stráheil..
Bílstjórahurðin er ryðguð ,,neðst......... veit ekki með botninn á henni
Ekkert ryð er við struttana,, en fyrir framan bílstjórann í horninu á hvalbaknum er 10 cm rifa sem þarf að sjóða í og þessháttar..
bitinn undir rúðunni er óryðgaður merkilegt nokk og alveg heill að sjá
Lófastórt gat er á innrabrettinu farþegamegin aftan neðst.. og þarf töluverða og eða góða kunnáttu til að gera það vel úr garði.
einnig er ryð á ytra byrði á brettaboganum aftan hægra megin ,, rétt komið í gegnum lakkið
Allar ruður heilar.. Toppurinn að utan í góðu lagi
Skottið var fullt af drasli,, svo ekki get ég lýst ástandinu þar
Það eru MJÖG heillegar BORBET A undir bílnum,, en dekkin eflaust grautfúinn
Um ástand vélar er akkúrat ekkert vitað af minni hálfu,, en um 250.000 þá er oft talað um töluvert OVERHAUL á S14..
ekki voru tök á að gangsetja bílinn,, og held ég að bíllinn sé ekki gangsetningar hæfur
Um mjög gerðarlegt eintak er að ræða og mjög fínn efniviður .. en Þar sem þetta er M3 þá kosta sumir hlutir morðfjár vs 2d E30
eins og allt í bremsur osfrv,, HURÐIN er öðruvísi osfrv
Þar sem undirritaður er búinn að gera svona með blæjuna 2x sinnum þá veit ég nokkuð vel um hvað þetta snýst,,
Það er alger firra að halda það að þetta kosti einhverja ,,2-3 hundruð þúsund að klára bílinn
Við erum að tala um MEGA bucks.. en fásinna er að kaupa þennann bíl og vera með eitthvert hálfkák,,
Þetta er bíll sem þarf að taka frá A-Ö og gera vel,,
Eitt ber einnig að nefna,, en eigandinn lét þessi fleygu orð falla:::::
Ég er ekkert fjárþurfi,,, og vill bara fá tilboð í bílinn,,
Eftir þeim heimildum sem ég hef undir höndum var boðið 12.5% hærra í bílinn en það tilboð sem áður stóð af ónefndum aðila,, því tilboði var alfarið hafnað.........en mig grunar að þetta gæti orðið áhugavert ferli..
Ps.. ég hef engra hagsmuna að gæta í þessu máli ,, en þar sem bíllinn er staddur á Bifröst þá geta menn sparað sér sporin og rennt augum yfir þessar línur,, sem ritaðar eru hérna og tel ég að þetta sé ansi raunsæ lýsing á útliti og ástandi bílsins
Viel spas........................