Sælir piltar,
bróðir minn á eitt stykki gullfallegan E46 318iA 2003 módelið sem væri ekki frásögu færandi nema það að hann er búinn að láta skipta um vél einu sinni og stendur nú frammi fyrir major aðgerð við að laga seinni vélina.
Þetta lýsti sér þannig að þegar hann kaupir bílinn fyrir fjórum árum amaði ekkert að bílnum eða svo hélt hann þangað til hann settist uppí bíl með samskonar mótor/skiptingu sem var töluvert sprækari en bíllinn hans. Hann fer í málið og sendir hann inní TB sem lesa af honum og segja honum að nokkur háspennukefli séu ónýt ásamt eitthverjum skynjara á vél(sem ég man ekki hver var), hann kaupir þetta nýtt og skiptir um en ekkert lagast bíllinn. Ég sagði honum þá að ræða við strákana inní Eðalbílum sem og hann gerir og kíkir Bjarki á bílinn og kemst að því að ventlastýringararmur í Valvetronic dótinu sé kapút. Varahlutirnir sem til þurfti í verkið ásamt áætlaðri vinnu voru þónokkrir hundrað þúsund kallar þannig að Bjarki og ég mældum með að hann leitaði að notaðri vél og fann hann eina sem kom úr silfurgráa AC Schnitzer breytta E46 318 bílnum sem tjónaðist uppá heiði. Skipt var um vél og viti menn, bíllinn þrælvirkaði loksins og bróðir minn hæstánægður þrátt fyrir allt þetta helv. vesen.
Nú eru komin um tvö-þrjú ár síðan "nýja" vélin fór ofan í og byrjar bíllinn á því núna í mánuðinum að láta öllu illu með rauðum ljósum í mælaborði og tilheyrandi! Bróðir minn drap á honum og lagði útí kant þar sem að hann núllaði tölvuna og setti í gang og bíllinn gekk eins og ekkert hafði í skorist en fór beint með hann ínní TB og lét lesa af honum. Ekkert fundu þeir en töldu að sveifarás- og knastáskynjararnir væru líklegir til þess að vera að valda þessu. Vikuna eftir þetta fór hann með bílinn til hans Kidda(K.Kristinnsson) sem kíkti betur á þetta og fann að tímakeðjan var sultuslök og taldi hann líklegt að hann hafði hoppað yfir á tíma. Kiddi þekkir þessar vélar ágætlega og veit að tímakeðjustrekkjarinn í þessum vélum fyllist af sóti með tímanum sem veldur því að hann strekkir ekki eins mikið á keðjunni og honum ber að gera sem jú veldur því að keðjan verður slök og getur hoppað yfir á tíma. Hann pantar því nýjan betrumbættan strekkjara úr umboði sem hann setur í bílinn og keðjan verður strekkt eins og hún á að vera og gengur bíllinn eðlilega. Daginn eftir er bíllinn kominn aftur uppá verkstæði hjá Kidda BILAÐUR og þarf nú að lyfta heddinu af mótornum og eitthvað meira vesen
Er einhver hér sem hefur lent í veseni með þessa mótora??