bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=70173 |
Page 2 of 4 |
Author: | Kristofer [ Thu 06. Feb 2020 22:19 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i |
Danni wrote: Þetta er sérstaklega smekklegur cabrio! Logi wrote: Glæsilegur bíll Sent from my SM-G950F using Tapatalk Kann að meta þessi góðu orð |
Author: | Kristofer [ Thu 06. Feb 2020 22:23 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Mazi! wrote: Ánægður með þig að fara í alvöru fjöðrun einsog KW, það eru alltof margir að vera wannabes og kaupandi sér eitthvað drasl frá kína! Gæti ekki verið meira sammála þér Ég vildi bara gera þetta almennilega, annars er bara betra að sleppa þessu |
Author: | Kristofer [ Sat 08. Feb 2020 13:34 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Eftir bíladaga var M40 mótorinn orðinn virkilega slæmur, mikið ventlatikk og léleg vinnsla. Í staðinn fyrir að eltast við þetta og gera við ákvað ég bara frekar að fara í annan mótor. M42B18 úr 318iS varð fyrir valinu, aðallega vegna þess að hann kom í E30 og deildi mjög miklu með M40 (alternator, vatnskassi, mótorfestingar, gírkassi og allt sem tengist honum, ofl). Hérna er hann kominn inní skúr, mótorinn sjálfur er í góðu standi en var orðinn mjög þreyttur útlitslega séð. Eyddi síðan svakalegum tíma í að ná öllu ógeðinu af blokkinni og málaði eftir á Sandblés síðan alla utanáliggjandi hlutina og málaði þá Eina sem var svo eftir var að skella mótornum aftur saman með nýjum pakkningum og græja coil on plug í staðinn fyrir gömlu þræðina |
Author: | Kristofer [ Sun 09. Feb 2020 17:48 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Þá var komið að rífa M40 úr Allir glaðir að losna við hann Það var alls ekki flókið að losa mótorinn þegar mótorpúðarnir litu svona út |
Author: | Mazi! [ Mon 10. Feb 2020 11:00 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Þetta verður snilld! M42 er alltaf lúmskt skemmtilegur mótor |
Author: | Kristofer [ Thu 13. Feb 2020 14:13 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Mótorinn tilbúinn að fara ofaní Hérna sést svo coil on plug moddið, notaði M52/M62 háspennukefli sem ég fékk hjá Skúla og Sævar Berio lét smíða plötuna sem þau sitja á. Síðan tengist bara upprunalega loomið beint í, utan við örlitlar breytingar til þess að ná lengdinni á vírunum réttri, svo bara út að spóla Græjan komin í og allt tilbúið Þarf bara að gera nokkra útlitshluti til þess að fá vélarsalinn til þess að lúkka út eins og ég vil hafa hann. Ætla líka að henda í massíft shoutout á Sævar fyrir að redda heilum helling af dóti fyrir mig, hefði aldrei getað klárað þetta jafn auðveldlega ef það hefði ekki verið fyrir hann Bíllinn fékk líka M-tech II stýri í bónus, fann enga betri mynd |
Author: | Emil Örn [ Fri 14. Feb 2020 17:46 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Þetta er alveg geggjað! Gaman að sjá metnaðarfulla uppfærslu á góðu eintaki af bíl Geggjað hvað margir eru farnir að gera þráð á kraftinum líka |
Author: | Kristofer [ Fri 14. Feb 2020 22:07 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Emil Örn wrote: Þetta er alveg geggjað! Gaman að sjá metnaðarfulla uppfærslu á góðu eintaki af bíl Geggjað hvað margir eru farnir að gera þráð á kraftinum líka Jáá, það er mjög gaman að skoða þessa þræði hjá öllum Það þurfa bara fleiri að hoppa á lestina |
Author: | rockstone [ Sun 16. Feb 2020 15:58 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Hef verið að spá í að fara í IS mótor sjálfur til að byrja með, mikið annað sem ég vill gera áður en ég fer í einhvað stærra, lúkkar vel! |
Author: | fart [ Sun 16. Feb 2020 16:57 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Mjög flottur, halda honum þannig Já og áfram krafturinn |
Author: | Kristofer [ Tue 18. Feb 2020 20:20 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
rockstone wrote: Hef verið að spá í að fara í IS mótor sjálfur til að byrja með, mikið annað sem ég vill gera áður en ég fer í einhvað stærra, lúkkar vel! Þetta er einmitt alveg frábært upgrade frá M10 eða M40 án mikils hausverks fart wrote: Mjög flottur, halda honum þannig Já og áfram krafturinn Takk fyrir, það er einmitt ætlunin! |
Author: | gstuning [ Fri 21. Feb 2020 18:44 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Þetta er glæsilegt |
Author: | Kristofer [ Wed 04. Mar 2020 13:47 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Jæja, búinn að festa kaup á felgum fyrir sumarið BBS RM 15" í 4x100 |
Author: | Emil Örn [ Tue 17. Mar 2020 09:44 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Geggjað, þessar felgur eiga eftir að lyfta honum upp á hærra plan! |
Author: | JOGA [ Sun 22. Mar 2020 17:38 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Vel valið allt. Virkilega smekklegt og vandaðar breytingar. Team kw! Sent from my SM-G955F using Tapatalk |
Page 2 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |