bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
1997 BMW E39 523i https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=69241 |
Page 1 of 2 |
Author: | Yellow [ Fri 25. Sep 2015 21:59 ] |
Post subject: | 1997 BMW E39 523i |
Jæja, það hlaut að koma að því að maður fékk sér BMW. Eftir að leitað og langað í BMW í langan tíma þá fann rétta eintakið sem mig langaði í og E39 varð fyrir valinu. Bíllinn stendur í 312.000 KM. í dag en hann stóð í 150.000 KM. þegar hann var fluttur til landsins árið 2005 frá Þýskalandi. Hann er búinn að fá rosa gott viðhald gegnum árin sem sést á bókhaldi bílsins. Svo elska ég OEM Style 65 sem hann er á. Og hérna er hann á bílasöluni í Keflavík þar sem ég sótti hann. |
Author: | KrissiP [ Fri 25. Sep 2015 23:37 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Nenniru að lækka hann? |
Author: | Aron123 [ Sat 26. Sep 2015 04:49 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Mjög flottur, til hamingju. en er sammála, það þarf að droppa honum aðeins |
Author: | Alpina [ Sat 26. Sep 2015 07:35 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
523 eru frábærir bílar,,, til hamingju með þetta |
Author: | Þórir [ Sat 26. Sep 2015 12:09 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Sæll og til hamingju! Ég flutti þennan gæðing inn með aðstoð Smára og var ekki svikinn. Bíllinn hafði verið í höndum tveggja prýðis manna í Þýskalandi og var afar vel með farinn. Ég átti hann í tvö ár, ca.en konan mín saknar hans ennþá. Aftur, til hamingju, gaman að sjá hvað hann virðist vera í góðu standi. Kv.Þórir |
Author: | BirkirB [ Sat 26. Sep 2015 14:01 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Snyrtileg fimma en mætti alveg við smá lækkun. Var á eftir þér um daginn, getur verið að hann brenni aðeins af olíu? |
Author: | Yellow [ Sat 26. Sep 2015 17:08 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Þórir wrote: Sæll og til hamingju! Ég flutti þennan gæðing inn með aðstoð Smára og var ekki svikinn. Bíllinn hafði verið í höndum tveggja prýðis manna í Þýskalandi og var afar vel með farinn. Ég átti hann í tvö ár, ca.en konan mín saknar hans ennþá. Aftur, til hamingju, gaman að sjá hvað hann virðist vera í góðu standi. Kv.Þórir Gaman að vita það, merkilegt hvað þessi bíll lítur vel út Ég mun lækka hann eftir veturinn þannig það er dagskrá En varðandi olíuna, hann brennir smá olíu sem ég þarf að tjékka á. |
Author: | KrissiP [ Sat 26. Sep 2015 17:45 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Yellow wrote: Ég mun lækka hann eftir veturinn þannig það er dagskrá Snilld! Hann verður mega flottur! |
Author: | Mazi! [ Mon 28. Sep 2015 10:02 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Þessi er mjög flottur og auðvelt að gera enþá flottari! Smá lækkun og kannski M stuðara ? |
Author: | Yellow [ Mon 28. Sep 2015 17:09 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Mazi! wrote: Þessi er mjög flottur og auðvelt að gera enþá flottari! Smá lækkun og kannski M stuðara ? Takk Ég ætla byrja á því að lækka hann, en er ennþá að pæla í hvort ég að setja M tech á hann |
Author: | Yellow [ Tue 29. Dec 2015 21:17 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Ekkert update svosem, en hérna eru tvær myndir af honum eftir Jólaþvottinn á Aðfangadag. Ef að einhver fyrirverandi eigandi vil deila gömlum myndum af honum með mér má hann alveg senda mér PM |
Author: | Yellow [ Sun 18. Sep 2016 01:20 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Kominn tími á update, ég er búinn að gera hitt og þetta fyrir hann á þessu ári. Byrjaði síðasta vetur á að kaupa vetrafelgur (Style 33 uppáhalds felgunar hans SRR ) undir hann og tók gott bón session á hann, notaði Ecocoat Wax á hann sem er að mínu mati besta bón sem ég kynnst. Keypti svo Facelift nýru á hann en tók þau svo af fljótlega, fannst þau ekki passa með Pre-facelift stuðra Síðan fékk ég leið á hvað hann var alveg himinn hár þannig ég verslaði coilover undir hann og skellti því undir. Rubbar alveg hressilega með 2 farþega aftur í Þegar ég keypti bílinn ákvað að ég ætlaði ekki að setja M-Tech stuðara, en þegar vinur bauð mér einn stuðara sem á hann átti á góðu verði ákvað ég að taka hann. Þannig ég keypti önnur Facelift nýru og setti þau á sama tíma og ég setti stuðran á. Svo verslaði ég að M-Tech afturstuðara með PDC, ætla mér einhvern tíman að retrofita svoleiðs í hann. Lét samlita listana Næstu plön hjá mér eru að þvo og bóna hann reglulega en annað kemur bara í ljós |
Author: | sosupabbi [ Sun 18. Sep 2016 12:44 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Geggjaður E39 |
Author: | rockstone [ Sun 18. Sep 2016 13:22 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Allt annar með mtech og lækkun! |
Author: | Yellow [ Thu 20. Oct 2016 17:04 ] |
Post subject: | Re: 1997 BMW E39 523i |
Setti Sport sæti í hann um daginn, allt annað að sitja í honum núna |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |