
Ég keypti þennan bíl fyrir nokkrum mánuðum árið 2011 og ég hef átt 1 bmw áður sem að ég seldi svo og keypti þennan í staðinn, Þar sem ég er mikill Bmw aðdáandi þá ætla ég mér að eiga hann lengi og mun gera hann eins flottann og góðann og ég get

Ég ákvað að gera þessa síðu til að sýna öðrum bílinn, hvernig hann mun breytast og líka til að fá skoðanir og hjálp frá öðrum
þannig að endilega segið mér hvað ykkur finnst

Bmw E36 320i
árgerð: 1992
vél: M50 B20 2.0 L 150hp Vanos
Bsk/Ssk = Beinskiptur 5 gíra
litur: Mauritiusblau
body keyrt: 270 þ km
vélin keyrð: 137 þ km
eyðir: sirka 8 í langakstri og 10-12 innanbæjar
-svört leðursæti og innrétting mjög vel farin
-Topplúga sem virkar fullkomlega
-opið púst
-rafdrifnir speglar
-órafdrifnar rúður
-Filmur
-17" BBS STYLE 5 RC035
-orginal smókuð afturljós
-kastarar
-góður geislaspilari
-Alpine Bassabox
-mjög vel farinn meðan við að hann sé keyrður svona mikið
búið að gera:setti carbon fiber bmw logo á hoodið,skottið og á stýrið
setti fjarstýrðar læsingar
skipt var um bensíndælu í september 2011
keypti nýtt TuningArt coilover lækkunarsett 2012
hjólastilltur eftir lækkun 29 maí 2012
skipti um loftsýju í janúar 2012
skipti um ventlalokspakkningu í janúar 2012
skipti um kertin 6 febrúar 2013
nýlega búinn að smyrja og skipta um nælonklossana í gluggunum
nýlega búið að skipta um spyrnufóðringu að aftan
keypti BBS STYLE 5 RC035 17" af Berio í júlí 2012, ný póleraðar
Skipt um "Guipo"=fóðring hjá drifskaptinu 1 júní 2012
lagað var beyglu og svo sprautað alla aftari-vinstri hurðina hjá bílabarnum 7 júní 2012
setti nýtt demparagúmmí í hann að framan vinstra megin 13 desember 2012
Þarf að gera:laga og sprauta listann að aftan hjá skottinu
laga og sprauta frambrettin
langar að gera:kaupa "spoiler lip"hjá rúðunni og skottinu.
kaupa læst drif
swappa yfir í M50 B25 mótor
sprauta hoodið, fram/afturstuðarann og sílsana=heilsprautun kannski
endilega stingið upp á einhverju fleiru fyrir mig
Svona var hann þegar ég fékk hann



