bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW E36 320i Coupe #9 Mtechhh https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=52117 |
Page 1 of 10 |
Author: | Dagurrafn [ Thu 21. Jul 2011 17:43 ] |
Post subject: | BMW E36 320i Coupe #9 Mtechhh |
Búinn að vera meðlimur hér í slatta tíma núna og finnst það sé kominn tími á að gera þráð Búinn að eiga þennan í nokkra mánuði núna, er ekkert búinn að vera neitt svaka duglegur að fikta í honum en það er vonandi að fara að breytast núna og planið er að eyða öllum sumarvinnupeningnum í hann næstu daga! það sem ég er búinn að gera núþegar: Setja græjur í hann Setja K&N síu í hann Negraði afturljósin(bara efsta partinn) Projector framljós+appelsínugul stefnuljós Sprauta listana svarta bletta í hitt og þetta skipta út hellingi í innréttingunni setja á hann 2ný hliðarbretti(stefnuljósalaus) Nýjar númerplötur+rammar Á eftir að gera: Redda mér hliðarlistunum(X) Lip á skottið Sprauta+rétta(X) Raceland Coilover (X) Filmur frammí Fékk bílinn semsagt svona keypti mér svo varahluta bíl og reif allt af honum sem ég gat notað lítur sirka svona út í dag allar athugasemdir/hugmyndir vel þegnar |
Author: | Hreiðar [ Thu 21. Jul 2011 18:05 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe |
good job! bara halda þessu áfram. Smekklegur e36 |
Author: | Róbert-BMW [ Thu 21. Jul 2011 19:13 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe |
Haltu þessu áfram verður flottari og flottari hjá þér með tímanum |
Author: | ingo_GT [ Thu 21. Jul 2011 22:35 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe |
Orðinn mikið betri hjá þér |
Author: | Dagurrafn [ Thu 21. Jul 2011 22:48 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe |
ingo_GT wrote: Orðinn mikið betri hjá þér Róbert-BMW wrote: Haltu þessu áfram verður flottari og flottari hjá þér með tímanum Hreiðar wrote: :shock: good job! bara halda þessu áfram. Smekklegur e36 Takk fyrir, Skal svo pósta myndum eftir sprautunina, búinn að vera að skoða geðveikan þráð á bimmerforums.com, "slammed e36's with non-M bumpers, Mæli klárlega fyrir alla e36 áhugamenn að skoða þráðinn, ekkert nema ógeðslega smooth bílar þarna, varð algjörlega ástfanginn af "venjulegu" (ekki //M) e36'unum! er við það að halda honum bara án //M pakkans http://forums.bimmerforums.com/forum/sh ... ?t=1003052 |
Author: | Dagurrafn [ Thu 18. Aug 2011 23:01 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe |
Loksins einhvað að gerast í þessum! Sendi hann í sprautun/ryðhreinsun í vikunni er svo að vinna í því að setja svarta innréttingu í hann.. kem með updeit þegar ég fæ hann úr sprautuninni |
Author: | Danni [ Fri 19. Aug 2011 01:09 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe.. Updeit á síðu 1 |
Þetta lítur út fyrir að ætla verða eitt af betri eintökum af E36 Coupe hérna Ég hlakka til að sjá hann tilbúinn hjá þér. |
Author: | ingo_GT [ Fri 19. Aug 2011 01:37 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe.. Updeit á síðu 1 |
Ert að gera góða hluti með þennan |
Author: | Dagurrafn [ Mon 19. Sep 2011 19:18 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe |
Þarsem mér leiðist hrikarlega ætla ég að henda inn nokkrum myndum af þessum á ennþá eftir að henda einhverjum listum á hann og bmw merkinu að framan en hann er svona nokkurnveginn tilbúinn eftir sprautunina. Voðalega lítið að gerast hjá þessum en planið fyrir veturinn er að koma honum athugarsemdalaust í gegnum skoðun og beint í filmun að framan þegar hann kemst í gegn, svo hendi ég kannski lippi á hann fyrir jólin. Annars langar mig að prufa mig einhvað áfram á þessum t.d. einhverja límmiða(eða er það orðið alltof þreytt?) Shark antenna(langar að losna við brotna svarta loftnetið) og kannski "number plate delete" og fá mér USA plötu til hliðar(Bara hugdetta Alls ekki viss um það) allar hugmyndir eru vel þegnar, og komment að sjálfsögðu |
Author: | IvanAnders [ Mon 19. Sep 2011 20:05 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe |
Flottur hjá þér. Mín persónulega skoðun er sú að það sé of dökkt þema í gangi. Allaveganna felgurnar og filmurnar. myndi sleppa límmiðum! Hefði reyndar bara tekið afturrúðuna úr partabílnum, þar sem mér sýnist að hún hafi verið með loftneti. Og sleppt filmum bara Svo er ég náttúrulega með bráðaofnæmi fyrir US spec dóti á BMW, þannig að ég er ekki viðræðuhæfur um nr. plötu pælingarnar En í öllum bænum prófaðu þig bara áfram og hafðu gaman að þessu! Mun fá mér E36 coupe einn daginn! |
Author: | Dagurrafn [ Mon 19. Sep 2011 21:22 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe |
IvanAnders wrote: Flottur hjá þér. Mín persónulega skoðun er sú að það sé of dökkt þema í gangi. Allaveganna felgurnar og filmurnar. myndi sleppa límmiðum! Hefði reyndar bara tekið afturrúðuna úr partabílnum, þar sem mér sýnist að hún hafi verið með loftneti. Og sleppt filmum bara Svo er ég náttúrulega með bráðaofnæmi fyrir US spec dóti á BMW, þannig að ég er ekki viðræðuhæfur um nr. plötu pælingarnar En í öllum bænum prófaðu þig bara áfram og hafðu gaman að þessu! Mun fá mér E36 coupe einn daginn! var ekki alveg viss með númerplötuna/límmiðana, sleppi því pottþétt en er nokkuð viss um að fá mér filmurnar frammí, þetta eru líka mjög ljósar filmur koma samt út fyrir að vera mjög dökkar á myndinni, en hvað varstu að meina með afturrúðuna? |
Author: | gunnar [ Mon 19. Sep 2011 21:45 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe |
Þessi hefur batnað mikið og er að verða flottur. Sammála með dökka þemað. |
Author: | Dagurrafn [ Mon 19. Sep 2011 22:38 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe |
gunnar wrote: Þessi hefur batnað mikið og er að verða flottur. Sammála með dökka þemað. sammála mér eða ivan? |
Author: | Emil Örn [ Mon 19. Sep 2011 23:00 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe |
Held ég sjái þennan stundum á Álftanesveginum. Passar það? Þó er þetta mjög snyrtilegur bíll hvort sem það stenst eða ekki! |
Author: | Dagurrafn [ Mon 19. Sep 2011 23:01 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 320i Coupe |
Emil Örn wrote: Held ég sjái þennan stundum á Álftanesveginum. Passar það? Þó er þetta mjög snyrtilegur bíll hvort sem það stenst eða ekki! Það passar, takk takk |
Page 1 of 10 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |