bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW E30 M3 - Varahlutakaup $$$$$$$$$
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=43476
Page 105 of 107

Author:  bErio [ Sun 13. Sep 2015 14:11 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

Skera þá bara allt aftan af M3inm nema vin nr partinn.. TADA!
Ekkert verið að færa vin a milli bíla.

Author:  fart [ Sun 13. Sep 2015 14:14 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

Dóri- wrote:
fart wrote:
Dóri- wrote:
Er boddy ekki bara varahlutur.

Nei


Þú virðist vera með staðreyndirnar á hreinu. Ertu með eitthvað til að bakka þetta upp ?

Já, lög og reglur um skráningaskyld ökutæki.

Finnur þetta á öðrum þræði hér á kraftinum sem og á vef umferðastofu, óþarfi að fara í gegnum það allt aftur.

JOGA wrote:
Löglegt í Bretlandi og stutt google leit sýnir að það er vaxandi skilningur á því að mega skipta um boddý á klassískum bílum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

https://www.gov.uk/vehicle-registration/radically-altered-vehicles

Reyndar kemur Q fyrir framan skráningarnúmer í skrám en það er nú nokkuð fair.

Löglegt ef heimild fæst, og þá eingöngu ef um söfnunargildi er að ræða, nákvæmlega eina og ég sagði áður. Þarf að vera pre-approved.

Author:  Daníel Már [ Sun 13. Sep 2015 14:42 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

þurfum að hringja í Hilmar B Þráinsson og leyfa honum að vera með í þessari umræðu :lol:

Author:  íbbi_ [ Sun 13. Sep 2015 16:28 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

held að það sé ekkert að þvælast fyrir mönnum svona almennt að það sé ekki löglegt að færa vin númer á milli boddýskejlja, málið er að menn kjósa hinsvegar að gera það þrátt fyrir það. og er nokkuð sama um lagahliðina, án þess að ég sé að réttlæta það eða ekki

Author:  D.Árna [ Sun 13. Sep 2015 16:32 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

En,,,að leyfa bara Máza að ráða hvað hann gerir við sinn eigin bíl?

Author:  srr [ Sun 13. Sep 2015 16:40 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

D.Árna wrote:
En,,,að leyfa bara Máza að ráða hvað hann gerir við sinn eigin bíl?

Hann stjórnar samt ekki lögum og reglum hvað þetta varðar.....

Author:  D.Árna [ Sun 13. Sep 2015 16:43 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

srr wrote:
D.Árna wrote:
En,,,að leyfa bara Máza að ráða hvað hann gerir við sinn eigin bíl?

Hann stjórnar samt ekki lögum og reglum hvað þetta varðar.....


Hann getur,,,,ef hann vill svikið undan þeim og eflaust komist upp með það eins og flest aðrir sem stunda svona.....

Þó að vísu,,,,mæli ég ekki með svoleiðis gjörning..

Author:  Zed III [ Sun 13. Sep 2015 17:16 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

D.Árna wrote:
En,,,að leyfa bara Máza að ráða hvað hann gerir við sinn eigin bíl?


Mikið betra og skemmtilegra fyrir umræðuna að láta aðra ráða þessu.

Author:  gstuning [ Sun 13. Sep 2015 17:47 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

Ég held að enginn sé sérstaklega að tala um Mása bíl.

Ég persónulega sé ekki ástæðu til að bjarga þessum bil, frekar leita uppi skel sem er í standi erlendis og flytja inn, svo flytja bara allt gramsið yfir.

Author:  Tóti [ Mon 14. Sep 2015 00:21 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

fart wrote:
Dóri- wrote:
fart wrote:
Dóri- wrote:
Er boddy ekki bara varahlutur.

Nei


Þú virðist vera með staðreyndirnar á hreinu. Ertu með eitthvað til að bakka þetta upp ?

Já, lög og reglur um skráningaskyld ökutæki.

Finnur þetta á öðrum þræði hér á kraftinum sem og á vef umferðastofu, óþarfi að fara í gegnum það allt aftur.

JOGA wrote:
Löglegt í Bretlandi og stutt google leit sýnir að það er vaxandi skilningur á því að mega skipta um boddý á klassískum bílum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

https://www.gov.uk/vehicle-registration/radically-altered-vehicles

Reyndar kemur Q fyrir framan skráningarnúmer í skrám en það er nú nokkuð fair.

Löglegt ef heimild fæst, og þá eingöngu ef um sönnunargildi er að ræða, nákvæmlega eina og ég sagði áður. Þarf að vera pre-approved.


Viltu ekki kíkja yfir á jeppaspjall.is þar sem helmingurinn af dótinu er skráð sem 67 bronco og fá smá útrás á þeim :lol:

Author:  Tóti [ Mon 14. Sep 2015 00:32 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

srr wrote:
D.Árna wrote:
En,,,að leyfa bara Máza að ráða hvað hann gerir við sinn eigin bíl?

Hann stjórnar samt ekki lögum og reglum hvað þetta varðar.....


En að rífa ótollaðann bíl, er það löglegt?

Author:  Kristjan PGT [ Mon 14. Sep 2015 09:21 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

Tóti wrote:
srr wrote:
D.Árna wrote:
En,,,að leyfa bara Máza að ráða hvað hann gerir við sinn eigin bíl?

Hann stjórnar samt ekki lögum og reglum hvað þetta varðar.....


En að rífa ótollaðann bíl, er það löglegt?


Hvaða vanþroskaða bull er þetta? Hér er verið að ræða hver lagabókstafurinn er. Ekki hvort menn fylgi honum eða hafi einhvern tímann brotið á honum. :roll:

Author:  Geirinn [ Mon 14. Sep 2015 12:29 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

Kristjan PGT wrote:
Tóti wrote:
srr wrote:
D.Árna wrote:
En,,,að leyfa bara Máza að ráða hvað hann gerir við sinn eigin bíl?

Hann stjórnar samt ekki lögum og reglum hvað þetta varðar.....


En að rífa ótollaðann bíl, er það löglegt?


Hvaða vanþroskaða bull er þetta? Hér er verið að ræða hver lagabókstafurinn er. Ekki hvort menn fylgi honum eða hafi einhvern tímann brotið á honum. :roll:


Nákvæmlega. Ég hef sjaldan séð menn væla jafn mikið yfir staðreyndum og yfir VIN-skráningar málum. Ef þetta og ef hitt skiptir engu máli - hér er verið að benda á hvernig reglurnar eru (sem eru m.a. til þess að menn kaupi ekki köttinn í sekknum (þó að einhverjum fyrri eiganda þyki eitthvað tæki alveg brjálað gott og flott, þá gæti þeim sem kaupir VIN breyttan bíl þótt hann vera svikinn), jafnvel bíla sem halda ekki eðlilegum styrk við árekstur). Við skulum endilega væla meira yfir þessu.

Author:  jens [ Mon 14. Sep 2015 13:08 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

Þetta er orðið flott, getur stjórnandi ekki flutt þessar pælingar í eigin þráð ? Væri til í að fylgjast með uppgerð á bílnum.

Author:  íbbi_ [ Mon 14. Sep 2015 18:45 ]
Post subject:  Re: BMW E30 M3 - Tjónaður bls 100.

jú. það ætti að færa þetta.

varðandi jeppa, þá er það ekki sami hluturinn, á bílum með heila grind þá er það grindinn sem telur, og boddýnúmerið á henni, og boddýið bara varahlutur sem er hægt að skipta um,.

ekki það að menn skipti ekki um grindur hægri vinstri líka, en það er ekki ólöglegt að skipta út boddýinu.

Page 105 of 107 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/