bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272 |
Page 377 of 423 |
Author: | fart [ Tue 07. May 2013 22:31 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 Bónhomm bls 376 |
Fatandre wrote: Hvernig ertu að fíla UUC dæmið fyrir shifterinn? Hef náttúrulega ekki prufað það ennþá, en það pirraði mig að ég þurfti að modda glænýjan OEM BMW shifter til að koma honum í UUC DSSR dótið..... |
Author: | fart [ Sat 11. May 2013 12:40 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 Bónhomm bls 376 |
Dótið komið frá Svíþjóð, illa spenntur að fara í samsetningu og test-drive. |
Author: | Angelic0- [ Mon 20. May 2013 17:16 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 Bónhomm bls 376 |
Flottur Sveinn, as always |
Author: | fart [ Tue 21. May 2013 07:04 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377 |
Takk fyrir það, Virkilega notaleg tilfinning að keyra á honum í vinnuna í morgun |
Author: | Fatandre [ Tue 21. May 2013 22:29 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377 |
Þessi er svo klárlega málið. Koma svo. Ég vil fá meira info um hvernig þetta UUC dót er að virka |
Author: | fart [ Wed 22. May 2013 06:34 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377 |
Fatandre wrote: Þessi er svo klárlega málið. Koma svo. Ég vil fá meira info um hvernig þetta UUC dót er að virka UUC dótið er frekar nice, ofboðslega ljúft í akstri og heldur mínu afli. Annars var ég að sjá sprungu í aftara manifoldinu við efri vinstri boltann á cylinder 5... Bara leiðinlegt að sjá það eftir að vera búinn að raða saman. Það hefði verið svo skítauðvelt að taka manifoldið af um helgina. |
Author: | fart [ Fri 24. May 2013 06:39 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377 |
Skemmtilegt hvað áhugaverð vandamál dúkka upp í þessum Það nýjasta er að olíuhitinn rýkur upp þó svo að vatnshitinn sé mjög stöðugur. Olía í 125°c í rólegum akstri á meðan vantið er steady í 95°c. Olíukælirinn er ískaldur sem og leiðslurnar í hann á meðan að mótorinn er sjóðandi. Líklegar skýringar eru að það sé ekkert flæði í olíukælinn annaðhvort vegna þess að hann sé stíflaður eða að termostatinn í síuhúsinu sé bilaður. Kælirinn er glænýr, og þetta vandamál byrjaði eiginlega eftir að ég lét setja hann í. Það er spurning hvort að mechinn sem installaði hafi gleymt að taka tappa úr honum,, það væri quick fix. Hin skýringin gæti verið bilaður termostat í síuhúsinu, en til að komast að honum þarf að taka húsið af blokkinni. Termostatinn hleypir olíu í gegnum kælinn þegar kjörhita hefur veirð náð. Ef að er vandamálið er annaðhvort að kaupa nýtt hús, eða að fara í constant flow breytingu, sem þýðir að olían flæðir stöðugt í gegnum kælinn. Slíkt er yfirleitt bara gert á dedicated Track bílum og er ekki mælt með því í daily bíla. Hinsvegar er ég með tvo auka olíuhitara (GT2252) þannig að mig grunar að þetta sé bara í fínu lagi hjá mér. |
Author: | bErio [ Fri 24. May 2013 07:55 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377 |
Vá hvað þetta ert þú í vinnunni miðað við hvernig þetta ævintýri með þennan helv bíl hefur verið |
Author: | fart [ Fri 24. May 2013 08:17 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377 |
Þetta er nú ekki stærsta aðgerð sem ég hef lent í. |
Author: | ömmudriver [ Fri 24. May 2013 13:31 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377 |
fart wrote: Hinsvegar er ég með tvo auka olíuhitara (GT2252) þannig að mig grunar að þetta sé bara í fínu lagi hjá mér. |
Author: | fart [ Wed 29. May 2013 13:11 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377 |
Flushaði olíukælinn og vandamálið er ekki þar. Ég er farinn að hallast að biluðum hitamæli, eða útleiðslu í honum. Olíuhitinn klifrar í 120°c c.a. en sveiflast dálítið á leiðinni þangað. Ef ég drep svo á mótornum en svissa strax á fer mælirinn niður í 98°C c.a. og svo upp í 120°c ef ég set í gang. Það er sénslaust að hitinn sveiflist um 20°C á sekúndu. |
Author: | gstuning [ Wed 29. May 2013 14:53 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377 |
Enn ef þú lætur hann bara sitja ekki í gangi? Fer hann aftur í 120 eða er það bara tengt því að vera í gangi. Svipar til vandamáls í Skyline sem ég sá um daginn, jörðin á vatnshita skynjara var tengt á sama stað og tvær viftur voru tengdar, þegar þær fóru í gang þá fór hitinn upp um 40° samstundis. |
Author: | fart [ Wed 29. May 2013 17:08 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377 |
gstuning wrote: Enn ef þú lætur hann bara sitja ekki í gangi? Fer hann aftur í 120 eða er það bara tengt því að vera í gangi. Svipar til vandamáls í Skyline sem ég sá um daginn, jörðin á vatnshita skynjara var tengt á sama stað og tvær viftur voru tengdar, þegar þær fóru í gang þá fór hitinn upp um 40° samstundis. Ég prufaði að hafa svissað alla leið í 20 mínútur um daginn, mælirinn hreyfðist ekki. Þannig að þetta tengist því að hafa bílinn í gangi. http://www.facebook.com/photo.php?v=472 ... =2&theater Annars skreið hann í 110 gráður áðan á leiðinni heim, samt fastur í traffík lengi. Svo var ég að taka af stað og drap á bílnum, setti í gang og mælirinn fór í 102c.s. og var þar þangað til að ég kom heim. 100% rafmagnsvandamál held ég. |
Author: | Lindemann [ Wed 29. May 2013 22:33 ] |
Post subject: | Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377 |
Spurning um að hreinsa upp kontaktana á hitaskynjaranum og jafnvel að mæla viðnámið í honum ef þú getur nálgast upplýsingar up viðnám miðað við hitastig. |
Page 377 of 423 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |