bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 358 of 423

Author:  ömmudriver [ Wed 26. Dec 2012 17:48 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Úps, ég hef misskilið þig þegar þú varst að stúdera hvort að það kæmist olía að þessu loki en ég var alveg viss um að þú vissir að það væri opið inní pönnu og sveifaráshús þarna á bakvið lokið :oops:

Það sést þokkalega vel á þessari mynd hvað er þarna á bakvið lokið:
Image

Author:  fart [ Wed 26. Dec 2012 17:52 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

akkúrat, þessi mynd sýnir að vel. Þarna hefur olían verið að sullast út hjá mér.... og út um lokið.
En það mun ekki komast svo mikið sem olíusviti framhjá þessu loki þegar ég set þetta saman :santa:

Author:  IvanAnders [ Thu 27. Dec 2012 07:15 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Pakkdósir eru einn af fáum hlutum sem ég nota ALLTAF OEM

Author:  fart [ Thu 27. Dec 2012 08:35 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

IvanAnders wrote:
Pakkdósir eru einn af fáum hlutum sem ég nota ALLTAF OEM

Já ég er mjög hrifin af OEM pakkningum, reyndar ekkert af þessu framleitt af BMW

Author:  JonFreyr [ Thu 27. Dec 2012 10:03 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Ég er ekki viss um að þú finnir fyrir því að boltarnir séu ekki í fullkomnu jafnvægi þar sem að þeir eru svo nálægt snúningspunktinum. Við erum að tala um nokkur grömm og fjarlægð frá miðju er mæld í cm. En vitandi að þú munt líklegast missa svefn yfir þessu þá skaltu bara setja þetta þannig upp að þyngd boltanna sé jöfn og allt sé í jafnvægi :)

Author:  fart [ Thu 27. Dec 2012 11:30 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

JonFreyr wrote:
Ég er ekki viss um að þú finnir fyrir því að boltarnir séu ekki í fullkomnu jafnvægi þar sem að þeir eru svo nálægt snúningspunktinum. Við erum að tala um nokkur grömm og fjarlægð frá miðju er mæld í cm. En vitandi að þú munt líklegast missa svefn yfir þessu þá skaltu bara setja þetta þannig upp að þyngd boltanna sé jöfn og allt sé í jafnvægi :)

Nett pirrandi svona lagað, en for the record fylgja nýir boltar með UUC dótinu :thup:

Author:  IvanAnders [ Thu 27. Dec 2012 18:34 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Svona leiðindalaust....

Hefur einhver hlutur, sem tekin hefur verið í sundur, í þessum mótor, eftir rebuild, verið rétt samsettur? :?

Þetta er ekki einu sinni í fyrsta skiptið sem það vantar pakkningu altogether!

Author:  fart [ Thu 27. Dec 2012 20:53 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

það eru allavega nokkrir hlutir sem ég hef lagað nú þegar.

Nýja kúplingin og svinghjólið komð í ásamt Getrag 420G. Það gekk ekki alveg þrautalaust að koma kassanum fyrir á sínum stað, en það hafðist. Ég þurfti að taka hann niður 3svar og byrja upp á nýtt bara til að skoða hvernig þetta fer saman.

Drifskaftið kom í dag þannig að þetta verður klárað á Laugardag. Bara smotterís samsetning eftir, skaftið, brakcet og púst. Z3 shortshifterinn gengur ekki. Hann er of langt niður og rekst í Guiboið..

Það eiga eftir að vera skiptar skoðanir um þetta, en ég makaði á þetta soundproofing/rustproof dóti. Þetta er matt núna.
Image

Image

Image

Image

Image

Image

Kassinn kominn í, svarta dótið dálítið rispað eftir átökin.
Image

Author:  gardara [ Thu 27. Dec 2012 22:56 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Svo sexy kúpling :drool:

Author:  x5power [ Fri 28. Dec 2012 01:08 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

ávísun á að drepa sig, að hafa svona trékubb á milli búkkans og bílsinns! :(

Author:  fart [ Fri 28. Dec 2012 08:10 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

x5power wrote:
ávísun á að drepa sig, að hafa svona trékubb á milli búkkans og bílsinns! :(

Ertu að meina ef hann splittast? Já ég hef hugsað út í það, hinsvegar er ég með 4 búkka, 2 ekki á kubbum, svo er ég með felgurnar undir bílnum líka. Áður en ég skríð undir tek ég vel á bílnum, hristi hann til.
Mig vantaði bara nauðsynlega þessa auka hæð.

Ég hef ekki tíma til að klára þetta í dag, geri það væntanlega á morgun. Þá veðrur gaman að finna muninn.

Annars prufaði ég að starta bílnum í morgun, og startarinn er ekki að grípa, hefur líklega farið eitthvað vitlaust uppá. Það er bara alveg djöfullegt að komast að þessu gírkassamegin, þannig að ég ætla að rífa pleniumið úr og þá blasir startarinn við. Auka 30-40mín þar :thdown:

Author:  JOGA [ Fri 28. Dec 2012 16:17 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Held það sé betri lausn að eiga góðar traustar hellur til að setja undir búkkann. Þ.e. þegar um er að ræða slétt undirlag eins og í bílskúr.
Ég leysi þetta venjulega þannig þegar mig vantar auka hæð.

Lítur vel út. Verður alltaf betri og betri :thup:

Author:  fart [ Fri 28. Dec 2012 21:04 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Svo er spurning hvar maður setur búkkana, brotinn heldur þeim ekki

Author:  fart [ Sat 29. Dec 2012 10:08 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

BARA BRJÁLAÐUR núna. Helvítis flywheelið er að nuddast utaní 10mm boltana sem halda lokinu fyrir sveifaráspakkdósina. Þetta var vandamál hjá þeim þannig að þeir eru búnir að sverfa úr kasthjólinu, en að mínu mati er það bara ekki nóg..

Ég er búinn að rífa allt í sundur aftur... og ég ætla að nota Dremelið í að sverfa c.a. 0.5mm af hausnum á 10mm boltunum :thdown:

Author:  JonFreyr [ Sat 29. Dec 2012 10:57 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Ertu að tala um þessa fjóra sem eru næst pakkdósinni? Og þú getur auðveldlega tekið af þeim, þeir eru ekki að halda blokkinni saman þannig að þetta hangir þó þú takir aðeins ofan af þeim. Samt leiðindavesen og það getur bara ekki verið að þú sért sá fyrsti sem lendir í þessu....en þetta er partur af þessu :x

Page 358 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/