bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 356 of 423

Author:  JonFreyr [ Mon 24. Dec 2012 08:24 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Þarft þetta auðvitað ekki en grunar að það gæti aukist eitthvað hávaðinn inn í bíl. Hugsanlega :)

Author:  fart [ Mon 24. Dec 2012 08:27 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Einangrunin er farin,

Kúplingin komin af, er merkt OMP og lítur ágætlega út, virðist vera nóg eftir. Pressan er frá Sachs og er merkt 240 MF
Flywheel einnig komð af. Læt þetta duga þangað til eftir Jól.

BTW vel af olíu sem kom út um boltagötin á flywheel, bendir til þess að pakkdósin á sveifarásnum sé farin. Ég er búinn að þurka hana vel, og ætla að sjá hvort að það lekur eitthvað niður úr henni. Annars grunar mig að það þurfi að segja bílinn í gang til að fá effectinn.

Kasthjólið er JB-Racing 520-180-240 sem er E46 M3 hjól,,

Quote:
1999 - 06 E46 M3 w/ S54 3.2L - 6 cyl. - w/ 6-speed manual transmission
Clutch Diameter: 240mm OEM Flywheel Wt. 24.5 lbs.
List Price $646.00 Alum. Flywheel Wt. 10.0 lbs


Grunar að þetta sé að leka.. nema það sé líka innri pakkdós? Samt furðulegt þar sem að mótorinn hefur fengið 4-5000km MAX síðan hann var endurbyggður hjá Gunna.
Image

Image

Image

http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/103161-2/Gerabo_swap0004.jpg

Image

Image

Image

Kúðlingspress+diskur ásamt flywheel er til sölu.

Author:  Lindemann [ Tue 25. Dec 2012 00:16 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Taktu lokið sem pakkdósin er í af og skoðaðu hvort það sé einhver rauf í pakkdósarsætinu á sveifarásnum.

Author:  fart [ Tue 25. Dec 2012 09:19 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Lindemann wrote:
Taktu lokið sem pakkdósin er í af og skoðaðu hvort það sé einhver rauf í pakkdósarsætinu á sveifarásnum.


Good idea :thup:

Author:  slapi [ Tue 25. Dec 2012 11:36 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Hvað er samt málið með kíttið , var ekki verið að rebuilda þetta?

Skrítið samt hvernig þetta lekur , efsti boltinn v/m er blautur og þá helst ofaná.
Endilega henntu inn myndum þegar lokið er komið af.

Edit. Startarinn er líka olíublautur, það getur verið annar leki en þá er hann að koma ofar.

Author:  ömmudriver [ Tue 25. Dec 2012 12:09 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

slapi wrote:
Hvað er samt málið með kíttið , var ekki verið að rebuilda þetta?

Skrítið samt hvernig þetta lekur , efsti boltinn v/m er blautur og þá helst ofaná.
Endilega henntu inn myndum þegar lokið er komið af.

Edit. Startarinn er líka olíublautur, það getur verið annar leki en þá er hann að koma ofar.


Þegar ég tók létt makeover á M20B25 úr E30 hjá mér þá skipti ég um þessa pakkdós og er hún í loki eins og pakkdósin á S50 en samkvæmt Bentley manualinum sem ég fór eftir þá var mælst til þess að notað væri pakkningarlím með þessu loki ásamt því að setja nýja pakkningu sem og ég gerði :)

Author:  slapi [ Tue 25. Dec 2012 12:12 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Það þarf ekkert að kítta þetta lok ef sett er ný pakkning , pannan er líka kíttuð

Author:  Lindemann [ Tue 25. Dec 2012 12:24 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

ömmudriver wrote:
slapi wrote:
Hvað er samt málið með kíttið , var ekki verið að rebuilda þetta?

Skrítið samt hvernig þetta lekur , efsti boltinn v/m er blautur og þá helst ofaná.
Endilega henntu inn myndum þegar lokið er komið af.

Edit. Startarinn er líka olíublautur, það getur verið annar leki en þá er hann að koma ofar.


Þegar ég tók létt makeover á M20B25 úr E30 hjá mér þá skipti ég um þessa pakkdós og er hún í loki eins og pakkdósin á S50 en samkvæmt Bentley manualinum sem ég fór eftir þá var mælst til þess að notað væri pakkningarlím með þessu loki ásamt því að setja nýja pakkningu sem og ég gerði :)


Það er líka ekkert að því.
Það þarf ekkert að gera það, en ef maður setur smá pakkningalím með pakkningunni er maður örlítið betur settur ef planið hefur kannski ekki verið alveg 100% slétt eða eitthvað slíkt.

Ég set allavega oft smá pakkningalím með svona lokum og alltaf nýja pakkningu.

Author:  fart [ Tue 25. Dec 2012 12:32 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Svinghjólið er náttúrulega á helvítis ferð, þannig að ef það er einhver olía að leka úr pakkdósinni er hún fljótlega komin út um allt.

Ég byrja á því að rífa lokið af og skoða þar. Bömmer ef ég þarf að skipta um þessa pakkdós samt.

Author:  fart [ Tue 25. Dec 2012 15:02 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Pakkdósin virðist vera ok, lekinn er að koma með crankinu. Er önnur dós þar?
Reif þetta af þar sem að ég var kominn í drullugallann, stór hluti af deginum fór að koma "pocket dirtbike" í gang, hreinsa blöndunginn. 4ra ára sonur minn fékk þannig í Jólagjöf :D

Image

Image

Image

Gírkassagöngin.. án hljóðeinangrunar.
Image

Author:  ömmudriver [ Tue 25. Dec 2012 15:15 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Var engin pakkning aftan á lokinu?

Author:  gardara [ Tue 25. Dec 2012 15:23 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Það er bara þessi pakkdós sem er þarna.

Author:  fart [ Tue 25. Dec 2012 15:24 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Hvernig getur þetta þá verið að leka olíu? Pakkdósin virðist vera "ok"

ömmudriver wrote:
Var engin pakkning aftan á lokinu?

nei, en.. skiptir það einhverju máli? Ég mun bara kítta þetta næst.

Author:  bimmer [ Tue 25. Dec 2012 15:35 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Gaman að þessu.

Author:  ömmudriver [ Tue 25. Dec 2012 15:43 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

fart wrote:
Hvernig getur þetta þá verið að leka olíu? Pakkdósin virðist vera "ok"

ömmudriver wrote:
Var engin pakkning aftan á lokinu?

nei, en.. skiptir það einhverju máli? Ég mun bara kítta þetta næst.


Það hlýtur að eiga að vera pakkning þarna aftan á lokinu líkt og á M20 eins og sést á þessari mynd sem ég tók af lokinu af M20 vélinni minni þegar ég tók það af vélinni:
Image

Þetta er bara örþunn pakkning og ég setti pakkningarlím með henni eftir að ég hafði hreinsað vel þar sem að hún átti að sitja bæði á vél og loki en nota bene ég gerði það bara vegna þess að mér tókst að rífa pakkninguna :x Og svo setti ég pakkningarlím undir lokið þar sem að það sest við pönnupakkninguna eins og Bentley manualinn sagði til um til þess að tryggja að það leki ekki olía með draslinu. Þegar ég skipti um pakkdósina þá setti ég hana ekki á nákvæmlega sama stað og gamla pakkdósin var heldur 1-2mm innar í lokinu svo að hún sæti ekki í sama farinu á sveifarásnum enda var gamla pakkdósin búin að búa til "far" í sveifarásnum.

Page 356 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/