bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 319 of 423

Author:  slapi [ Sat 21. Apr 2012 20:42 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen FIXED!!!!111-

Hvað er að ykkur??? Þetta stingur alveg í augun. :lol: :lol:
Ekki svona skakkt í mínum.

Author:  fart [ Fri 27. Apr 2012 07:51 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt

Já kanski að maður skoði nýtt hanskahófl, :lol:

Annars er bíllinn á verkstæði núna. Þessi olíuleki á milliheddinu var farinn að pirra mig endalaust, og ég ákvað að senda bílinn á verkstæði í stað þess að gera þetta sjálfur. Ég hefði líklega getað það, en vildi bara ekki eyða tímanum í þetta, enda hefði tímun á ásum og vanosi þurf að vera 100% rétt og það er eitthvað sem ég næ pottþétt ekki í fyrstu tilraun.

Ég keypti annað millihedd (eða Camshaft tray) á Ebay þar sem að nokkrar gengjurnar fyrir ventlalokið í mínu voru ónýtar. En það var kanski ágætt því að Mechinn er á því að milliheddið sem er núna í mótornum sé ekki alveg planað, þar sem að olían er að leka að framan, inntaksmegin og að aftan.

Þar að auki keypti ég nýjar skrúfur til að festa "ventlalokið" kosta ekki nema c.a. € 6 stykkið ! og þær eru helvíti margar.. gengjurnar voru orðnar lélegar og héldu illa. Þetta eru spes skrúfur með stoppara og gúmíhosu.

Mechinn benti mér líka góðfúslega á það að olíukælirinn sé alveg á síðasta snúningi, bæði undinn og boginn. Þannig að ég pantaði nýjann olíukæli áðan.

Auk þess er ég að láta sérsmsmíða fyrir mig 3" í tvo 2" Y stykki með 38mm útgangi fyrir Turbosmart Blow off ventilinn. Þá mun ég loksins ná að klára 3" conversionið á chargepipes.

Annars var ég að renna yfir það í huganum í gær hvað er nýtt/nýlegt í bílnum.. og mér varð háfl flökurt :lol: Þetta er s.s. það sem hefur verið skipt um nýlega og bílilnn líklega ekinn minna en 3000km síðan, flest mun minna ekið.
Vatnskassi
Vatnsdæla
Vantslás
Viftukúpling
Viftureim
Alternator
Startari
Olíukælir (á leiðinni)
Kúplingsþræll
Guibo
Bremsuklossar að aftan
Bremsuvökvinn í öllu kerfinu
Endakúturinn
Tappinn á kælivatninu (mjög mikilvægt að skipta reglulega um hann)
Intercoolerrörin, hosur og klemmur (á lokastigi)
Nýboruð blokk
Nýjir stimplar
Nýjar sveifaráslegur
Nýplanað hedd
Ný heddpakning og aðrar pakningar í mótor
Boltar í ventlalokinu (á leiðinni)
Báðar Túrbínurnar (líklega 3000km max á þeim)
VEMSið og allt það dót
EGT probes
ICV
ICV hosan í airbox
Framrúðan
Kertin
Olíusía
Caastrol eðalolía (sem verður skipt um núna þegar ég skipti um olíukæli)
Oil-drain og pakningar á báðum túrbínunum (setti það í fyrir viku)
lokið yfir miðtöðinni (hjá rúðuþurkunum, keypti nýtt þegar nýja framrúðan fór í).
Federal Semislikkarnir (kanski 1000km total á þeim)
Wheel studs + nuts conversion

.... líklega er ég að gleyma einhverju.

En þetta ætti þá að hanga næstu árin, vonandi.

Author:  gunnar [ Fri 27. Apr 2012 09:33 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt

fart wrote:

En þetta ætti þá að hanga næstu árin, vonandi.


Aldrei koma með svona quotes... Hvað þá á þessum bíl! :lol:

Author:  fart [ Fri 27. Apr 2012 09:35 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt

gunnar wrote:
fart wrote:

En þetta ætti þá að hanga næstu árin, vonandi.


Aldrei koma með svona quotes... Hvað þá á þessum bíl! :lol:


Nokkuð ljóst að dekkin munu ekki gera það, og spurning með mótor, en það eru helvíti margir íhlutir nýjir eða nýlegir núna.. :o

Author:  fart [ Sat 28. Apr 2012 19:19 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt

Smá dund þar sem að bíllinn er á verkstæði. Hugsaði mig aðeins um hvort að ég ætti að samlita valvecover með bílnum, en ákvað á endanum að hafa þetta OEM, eða þannig. Á morgun glæra ég yfir þetta og blinga það aðeins upp. Held að það komi vel út þegar IC rörin og airboxið verða komin í sama gír. Fínt að sita úti í 25°C dag með ventlalokið í fanginu og pússa :santa:

Image

Image

Image

Ég er ekki alveg 100% sáttur við árangurinn, þetta leit vel út eftir að ég pússaði, en það er samt enn eitthvað um ójöfnur og leiðindi :argh:

Author:  gardara [ Sat 28. Apr 2012 20:30 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt ventlaloksdund.. 28.04.2012

hvernig ertu að pússa stafina? pólering?

Author:  fart [ Sat 28. Apr 2012 21:10 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt ventlaloksdund.. 28.04.2012

gardara wrote:
hvernig ertu að pússa stafina? pólering?

Bara pappír, verður brushed áferð á stöfunum.

Author:  fart [ Mon 14. May 2012 18:39 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt ventlaloksdund.. 28.04.2012

Image

Helvíti góður við hliðina á DTM 8)

Author:  bimmer [ Mon 14. May 2012 19:02 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt BMW-Power Magazine bls 319

Góður - pósta svo greininni!!!!

Author:  gunnar [ Mon 14. May 2012 19:37 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt BMW-Power Magazine bls 319

Flottur!

Forsíðu myndin er nú ekki falleg.. Guð minn almáttugur.

Author:  fart [ Mon 14. May 2012 19:49 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt BMW-Power Magazine bls 319

Skelfilegur þessi E46..... En samt eitthvað af flottu dóti þarna.

Ég á eftir að sjá greinina, svo er von á annari grein í öllu þekktara blaði :P

Author:  JOGA [ Mon 14. May 2012 19:55 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt BMW-Power Magazine bls 319

fart wrote:
Skelfilegur þessi E46..... En samt eitthvað af flottu dóti þarna.

Ég á eftir að sjá greinina, svo er von á annari grein í öllu þekktara blaði :P


E36 vel dulbúinn.
Til hamingju með birtinguna :thup:

Author:  fart [ Mon 14. May 2012 20:05 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt BMW-Power Magazine bls 319

Það verður mjög áhugavert að sjá hvað þeir skrifa, spurning hvort að þeir hafa bara fengið copy af því sem átti að koma í hinu blaðinu.

Author:  Zed III [ Tue 15. May 2012 09:31 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt BMW-Power Magazine bls 319

Nice,

Koma svo með greinina.

Author:  fart [ Wed 16. May 2012 20:03 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt BMW-Power Magazine bls 319

Tók highway tvö rönn áðan :twisted:

Clueless gaur á þessum fína hvíta E46M3 var gersamlega étinn og er líklega enn ekki búinn að átta sig á því hvernig E36 gat rústað honum svona svakalega.

Áhugaverðara var rönn við Z06 Corvette, ég skrúfaði boostið í botn og gat þannig haft hann :thup:

Page 319 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/