bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 285 of 423

Author:  fart [ Fri 23. Dec 2011 17:42 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Jæja.. live and learn sagði einhver. Nú er ég búinn að glæra yfir með hálfmöttu og þetta er vel matt. Í raun er það betra þar sem að glansáferðin sýndi alltof mikið ýmsar misfellur í innri brettunum og ég hefði þurft að eyða miklum tíma í undirvinnuna ef ég hefði átt að vera sáttur við glansið.

Hinsvegar er þetta eiginlega aðeins OF matt, en samt mjög svipað því sem var OEM. EINA böggið núna er að þetta er hrikalega viðkvæmt fyrir rispum, og þegar þetta rispast þá kemur glans rispa :roll:

Það verður því ekki bæði haldið og sleppt í þessu eins og mörgu öðru. Ég er aðeins byrjaður að henda köplunum niður, setja smellur og dót og þá kemur smá mynd á þetta.

Þetta virkar pínu grátt á myndunum, líka vegna þess að 500Watta lamparnir eru vel bjartir. Reyndar eru myndirnar alveg stórfurðulegar, spurning hvort að glæran dregur svona í sig flashið og magnast upp??
Image

Image

Þetta er aðeins eðlilegra á þessari mynd.
Image

Image

Hugsanlega hefði verið gott að hafa þetta eins og það var í morgun áður en ég setti glæruna yfir aftur, en það verður ekki aftur snúið núna. Reyndar pirraði mig svakalega hvað undirvinnan hjá mér var léleg og glansinn át það allt upp.

En GLEÐILEG JÓL :santa:
Sven

Author:  íbbi_ [ Fri 23. Dec 2011 18:22 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

gleðileg jól maður. ég persónulega hefði haft þetta glansandi, sést svo lítið í þetta

hlakkar til að sjá þetta tilbúið aftur

Author:  fart [ Fri 23. Dec 2011 19:24 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Spurning til pró bílamálaranna hvoð gerist ef ég set glans á struttana?

Myndi ég þurfa að matta niður og mála aftur eða get ég sett glans yfir til að fá litinn afur?

Ég hefði kosið að hafa þá aðeins meira glans en þetta...... :?

Author:  ///MR HUNG [ Fri 23. Dec 2011 20:53 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Mér finnst þetta miklu flottara svona :thup:

Author:  sh4rk [ Fri 23. Dec 2011 20:56 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Mér finnst þetta enganveginn vera að gera sig svona matt

Author:  JOGA [ Fri 23. Dec 2011 20:57 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Finnst þetta allt í lagi svona.
En vertu bara viss um að þú sért sáttur áður en þú ferð að bolta þetta saman aftur.

Núna er tækifærið til að eiga við þetta :)

Author:  fart [ Fri 23. Dec 2011 21:02 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Well þetta er bæði flottara og svo ekki... Nú sjást misfellurnar ekki en liturinn dofnaði aaaaðeins of mikið.

Glansið var samt pínu of pimp fyrir minn smekk... Það er líklega enginn millivegur samt.

Það vantar bara meira í vélarsalinn til að rífa litinn upp?


Btw.. Myndirnar gera þessu ekki alveg greiða, þetta er ekki svona "grátt og loðið" í raun.

Author:  fart [ Sat 24. Dec 2011 13:44 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Að mála bíl á aðfangadag er góð skemmtun,

Setti glansglæru yfir struttana og er loksins ánægður með áferðina. Hálfmatt var það heillin.

Author:  bimmer [ Sat 24. Dec 2011 14:09 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Pics?

Author:  Alpina [ Sat 24. Dec 2011 14:17 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

8)

BARA í lagi ad menn leggji vinnu og metnad í svona.....

grídarlega ánægdur med thetta framtak... :mrgreen: 8) .... eins og ég segi,, MENN ERU I VINNUNNI ,,,,,, og hugan vid thetta :thup: :thup: :thup: :thup:

Author:  fart [ Sun 25. Dec 2011 10:16 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -búinn að mála vélarsalinn-

Lokaniðurstaðan. Sambland af "satin" áferð á demparaturnunum og svo alveg matt á innri brettunum. Held að ég sé bara sáttur við þetta svona.

Image

Image

Image

Image

Þá er bara að fara að gufusvo smáhluti, smella köplunum á sinn stað og gera klárt í Installið.

Nett gaman að standa í þessu málningardóti, gerði helling af mistökum og lærði eitthvað. Þetta er eins og ég sagði laaaangt frá því að vera fullkomið, en þetta er mun snyrtilegra en áður.

Author:  Alpina [ Sun 25. Dec 2011 10:30 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -búinn að mála vélarsalinn-

Glans er alveg málid,,

thetta Matt er ekki fyrir mig

Author:  fart [ Sun 25. Dec 2011 11:30 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -búinn að mála vélarsalinn-

Þetta verður flott þegar ég verð búinn að dressa þetta með öllu dótinu. Matta áferðin felur allavega dældirnar ágætlega.

Author:  fart [ Mon 26. Dec 2011 15:54 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mótorinn kominn í-

Á erfitt með að sitja aðgerðarlaus þegar það er verkefni fyrir framan mig, nennti ekki að bíða eftir Lúxurunum og henti bara mótornum í sjálfur. Hann er kominn c.a. á sinn stað, búinn að festa hann við subframe og næsta verkefni er að lyfta gírkassanum á sinn stað og svo subframe ásamt því að tengja stýrið. Restin er bara plug/play.

Image

Author:  bimmer [ Mon 26. Dec 2011 16:28 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mótorinn kominn í-

Góður!

Page 285 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/