bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 283 of 423

Author:  Alpina [ Wed 21. Dec 2011 19:12 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

fart wrote:

Þetta er þá harðasta vatnsblandaða feiti EVER! Því að áferðin er eins og polyurethane


WHAAAAAAAT ,,,,,,,,,,,, :lol: :lol: :lol:

Author:  ///MR HUNG [ Wed 21. Dec 2011 19:18 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Poly í hjólabúnaði og Poly í mótor......Ekki allir svona vel græjaðir 8)

Author:  fart [ Wed 21. Dec 2011 19:35 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

///MR HUNG wrote:
Poly í hjólabúnaði og Poly í mótor......Ekki allir svona vel græjaðir 8)

Haha, gott að einhverjum er skemmt, en þetta lítur bara illa út...

Ef ég lít framhjá klúðrinu með að setja olíuöndunina í hringrás, sprengja út ventlalokspakkninguna og ausa olíu yfir mótorinn, turbos, downpipesvafningana, gírkassann og botninn þá er langt frá því að bíllinn hafi verið tilbúinn og þess heldur í betra standi en hann var.

Tvær pakningar vantaði á aftari bínuna sem var bara aðgengilegt ef mótorinn fer úr.. Óafsakanlegt með öllu að mínu mati að setja mótorinn í á sínum tíma án þessara pakninga.
Gamlir o-hringir á inntakinu og einn vantaði þannig að það lak greinilega boost þar.
Pústið laust undir bílnum, bæði gúmíin sem halda miðjunni rifin
5-6 boltar forskrúfaðir á ventlalokinu
Ristin yfir miðstöðinni mölbrotin
Hlerinn á kassettutækinu brotinn (wtf is up with that)
Ótrúlega mikið af pakningakítti utaná mótornum
Þessi brúna drulla á blokkinni, já og málningin farin að flagna all svakalega af..
Ein felga illa köntuð
Og svo verkfærasettið tómt, en Gunni ætlar að senda mér það.
Fyrir utan það að bíllinn var tiltölulega nýmálaður að framan og í frekar góðu útlitsstandi þar, en er nú massa rispaður Á frambrettum, húddi, grilli og framatuðaranum.

Author:  thisman [ Wed 21. Dec 2011 19:43 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

:thdown:

Author:  slapi [ Wed 21. Dec 2011 22:09 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

thisman wrote:
:thdown:

What he said

Author:  Bandit79 [ Wed 21. Dec 2011 22:32 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

dislike á etta :evil: :thdown:

Author:  IngóJP [ Wed 21. Dec 2011 22:59 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Sorry með mig en þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ég heyri af bíl sem kemur frá Gunna sem er í ruglinu lausar skrúfar og allur andskotinn.
Væri ekki betra að þú kæri Gunni myndir snúa þér að einhverju öðru ert greinilega algjör AULI þegar það kemur að því að skrúfa saman vélar. Aron Jarl ætti að geta tekið þig í kennslu hvernig það á að ganga frá hlutunum :thup: .

Author:  bErio [ Wed 21. Dec 2011 23:01 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Ég tala kannski með óæðriendanum núna
En ætti Gunni ekki að halda sig bara við að tjúna og tölvast og láta færari menn um að skrúfa, græja og gera?

Author:  IngóJP [ Wed 21. Dec 2011 23:05 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

bErio wrote:
Ég tala kannski með óæðriendanum núna
En ætti Gunni ekki að halda sig bara við að tjúna og tölvast og láta færari menn um að skrúfa, græja og gera?


Alls ekki M20B28 Turbo YA-120 ég segi bara megi djöfullinn biðja fyrir sér ásamt Gunna úr kef með þessa blessuðu turbo mótora sem eru búnir að vera 2 ár á leiðinni :thdown:

Author:  Mazi! [ Thu 22. Dec 2011 04:46 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Hey vó það má alls ekki setja úta vinnubrögðin hans Gunna, ég var allavega alveg skotinn á kaf þegar ég var að gera lítið úr vinnubrögðunum á M20B28 turbo og hvernig M3 var þegar ég sæki hann frá Gunna :lol:

Author:  maxel [ Thu 22. Dec 2011 04:53 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

gunni fúsk.. eru það fréttir?

Author:  Giz [ Thu 22. Dec 2011 11:04 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Hvaða rugl er þetta...!

Jafn mikið og ég dáist að eljunni í Fartaranum við þetta, og dugnaðinum, þá virðist maður equally unimpressed með endann á sögunni endalausu, án þess að vera á staðnum þó...

Hér var maður að vona, fyrir alla aðila að málið væri búið og allir happí,,,...!!!

Jóla hvað ;)

G

Author:  fart [ Thu 22. Dec 2011 12:16 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Jólapakkinn í ár!
Image

Image

Svo var bara að hlaða byssuna og gluða yfir :alien:
Image

Image

Image

Image

Verkfærið
Image

Image

Þetta eru 3 umferðir þarna, en líklega hef ég sett of mikið af málningu í hvert skipti því að ég er að verða búinn með 250ml dósina.. og það eru taumar á struttinum farþegamegin. Ég ætla því að pússa það niður þegar þetta er þurrt og mála aftur.
Það eru göt og rispur sem hefði verið gaman að laga, en ég hef ekki kunnáttu eða tæki í það, auk þess sést það minna þegar ég er búinn að setja hálfmatt yfir. Mig langar samt nett að hafa struttana svona glansandi. Spurning að kaupa dós af glansglæru.

Author:  Mazi! [ Thu 22. Dec 2011 14:34 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Dugar ekki að pússa lekana niður bara og glæra svo yfir ?



Þetta er mega flott!

Author:  fart [ Thu 22. Dec 2011 15:17 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Mála vélarsal og fleira....-

Mazi! wrote:
Dugar ekki að pússa lekana niður bara og glæra svo yfir ?



Þetta er mega flott!


Það er það sem ég gerði, var að klára að glæra með hálfmöttu. Kom bara nokkuð ásættanlega út :thup:

Fór 3svar yfir með glæruna, þori ekki að fara oftar. Þetta eru þá 4 umferðir af lakki og 3 af glæru. Það væri alveg pottþétt hægt að gera þetta betur...

Litanúmerið komið á sinn stað og svo custom miðinn, setti þá fyrst og glæraði svo yfir, vonandi að það verði í lagi. Svo get ég farið að dunda mér við að setja snúrur og dót á sinn stað, þá kemur meiri mynd á þetta. Ætla líka að setja límmottur til að hitaverja á nokkrum stöðum.

Page 283 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/