bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að klárast https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=11326 |
Page 213 of 214 |
Author: | bimmer [ Sat 01. Oct 2022 15:46 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[14. júní, 2022] [24 dagar í skip] Fór með bílinn í skoðun. Einhverra hluta vegna virtust sumir skoðunarmenn vita allt um bílinn og buildið Virtust missa áhuga á öðrum bílum og allt í einu voru nokkrir gaurar að skoða bílinn. Þegar skoðunarmaðurinn fór undir bílinn heyrðist "Eitthvað er búið að moka undir þennan af pörtum!" Nýr 23 miði, fundu bara eitt að..... flautan virkaði ekki. Hafði gleymst að tengja hana. Þannig að með bílinn skoðaðan gat ég loks farið að nota hann og byrjaði að skella mér í Kringluna og lagði auðvitað lengst út í horni Nú gat ég byrjað að tilkeyra vélina. Planið var að keyra 1000 km og vera mest að pulla milli 2000 og 4000 snúninga til að pússa hringina inn, síðan setja á hann Mobil1 5-50 áður en við færum til Þýskalands. |
Author: | bimmer [ Sun 02. Oct 2022 00:03 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[22. júní, 2022] [16 dagar í skip] Af einhverri ástæðu voru hosurnar sem fæða loft að blásaranum hægra megin alltaf að losna. Þetta voru tvær 90° beygjur sem losnuðu alltaf í miðjunni. Þannig að ég náði í 180° hosu og setti í staðinn. Tilkeyrði aðeins meira og stoppaði út á KK braut - blautur pitturinn bauð upp á spegil photo opp |
Author: | bimmer [ Sun 02. Oct 2022 00:24 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[24. júní, 2022] [14 dagar í skip] Fór með bílinn og lét hlaða á loftkælinguna. Að fara til Þýskalands í júlí án loftkælingar virkaði ekki spennandi. Því miður kom í ljós að AC dælan var ekki að virka. Djöfuls ves, ekki mikill tími til að laga.... |
Author: | bimmer [ Sun 02. Oct 2022 00:34 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[26. júní, 2022] [12 dagar í skip] Smá leki úr öðru forðabúrinu fyrir blásaraolíu þannig að ég tappaði aðeins af og skellti nýjum koparskinnum í. Virðist hafa virkað. |
Author: | bimmer [ Sun 02. Oct 2022 01:04 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[27. júní, 2022] [11 dagar í skip] Nú var vanosið á bank 1 aftur farið að stríða mér og ég hringdi aftur í Ívar og sagðist vera í veseni. Hann var fljótur að bjóðast til að lána sér sitt vanos bank 1 borð. Bíllinn hans er að fara í gegnum langa uppgerð og hann þarf sitt ekki strax. En um leið og hann rétti mér borðið þá snérist leikurinn við Get ég fengið lánaða throttle actuatorana úr þínum S85??? Hvernig get ég neitað bjargvættinum??!?!?!??!? "Ekkert mál að taka þá úr" sagði hann. Svo að...... Á leiðinni burt þá gátu bræðurnir ekki horft á Vorsteiner húddið pínu skakkt á bílnum. Þannig að þeir fóru í að laga Auðvitað náðu þeir að laga þetta |
Author: | bimmer [ Sun 02. Oct 2022 01:07 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[28. júní, 2022] [10 dagar í skip] Skúli reddaði mér annari AC dælu. Áhugavert að hún er úr RU159 sem var jú hinn E39 M5 bíllinn sem BL seldi. Auðvitað þurfti að þrífa almennilega..... Nógu gott |
Author: | bimmer [ Sun 02. Oct 2022 01:15 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[30. júní, 2022] [8 dagar í skip] Ok nú var komið að því að laga tjón sem varð 11. júní þegar Hr. X var enn á landinu. Við vorum að vinna flat out og reyna að klára eins mikið í bílnum og hægt var áður en hann færi heim. Það sem gerðist var að í eitt skiptið sem ég var að lyfta bílnum gleymdi ég að bílskúrshurðin var uppi og lyfti bara bílnum í venjulega hæð. Sem endaði með þessu! Allur afturendinn á þakinu beyglaður eftir hurðina/járnið á hurðinni. Var búinn að heyra í Brynjari og hann sagðist hafa tíma ca. 30. júní. Þannig að hér er ég að láta hann hafa bílinn. |
Author: | bimmer [ Sun 02. Oct 2022 01:16 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[4. júní, 2022] [4 dagar í skip] Kíkti við og tékkaði hvernig gengi - búið að laga þakið, ready fyrir sprautun. |
Author: | bimmer [ Sun 02. Oct 2022 01:36 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[5. júlí, 2022] [3 dagar í skip] Náði í bílinn, þakið nú perfekt og búið að sjæna bílinn aðeins til Þannig að með aðeins 3 daga þangað til að bíllin fer frá Þorlákshöfn til Rotterdam, þá förum við í að tækla loftkælingarmál! Að fara til Þýskalands í júlí án AC er eitthvað sem hljómar frekar illa. Þannig að ég hitti Markús eftir vinnu hjá honum. Þurftum að droppa blásaranum farþegamegin til að komast að dælunni. Þurftum líka að komast að ofan frá. Komumst strax að því að dælurnar voru ekki 100% eins, andsk... Komumst að því að dælan mín var alveg handónýt en hin var í lagi. Kúplingin á minni var í lagi en ekki á hinni. Og við þurftum að færa hluti á milli til að hægt væri að tengja hina við AC kerfið í mínum. Markús rauk í að rífa þetta í sundur. Spurði hann hvort hann hefði gert þetta áður og vissi hvað hann væri að gera. Svarið var nei en hann var alveg viss um að hann gæti fengið þetta til að virka. Hér eru nokkrar myndir af ferlinu. Ég minnti Markús reglulega á að við þyrftum að lágmarki dælu sem virkaði sem pulley. Bara 3 dagar í að dallurinn færi þannig að ég var frekar stressaður með þetta Verð að viðurkanna að mér leist ekkert á hvernig þetta var að þróast Komumst að því að þessar 2 Denso dælur voru ekki með sama innvols. Þurftum að færa þetta tengi á milli. Verið að refurba kúplinguna. Farið að líta út eins og AC dæla aftur. Þurftum að færa kúplingsleguna á milli. "Frankenstein" tilbúinn, mix úr 2 dælum, fyllum á með PAG46. Rétt fyrir miðnætti fer hún í. Næs var að skipta út tilkeyrsluolíunni, búin með 1000km. Markús tekur sýnishorn af olíu í byrjun aftöppunar. Verið að greina sýnið. Markús var ekki 100% ánægður með þetta þannig að við settum aftur mineral olíu fyrir lágmarks akstur/flush. Kláruðum kl. 1 eftir miðnætti! |
Author: | bimmer [ Sun 02. Oct 2022 01:48 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[6. júlí, 2022] [2 dagar í skip] Aftur að hlaða AC.... Viti menn, kerfið heldur þrýstingi og AC var bara ice cold - SUCCESS!!!!! Kom við hjá Danna og fékk nýjar framljósaperur, install innifalið í verði! Þegar ég kom heim tók ég eftir þessum pollum og velti fyrir mér hvernig í helvítinu bremsuvökvi gæti verið að leka báðum mein! Fattaði svo að þetta var olían af loftsíunum - höfðum olíuborið þær mjög ríflega !! Skellti nýju dekkjunum í bílinn, Pirelli P Zeros og fór til að láta setja þau undir. Fór með felgurnar á ákveðið verkstæði sem búið var að mæla með þar sem þar væru felgur pottþétt ekki rispaðar. Sagði þeim að ég væri þar af því að þeir væru þekktir fyrir að fara vel með felgur og rispa þær ekki. Ca. 15 mínútum síðar voru þeir búnir að rispa felgu - 2 dagar í skip!!!! Kom við hjá Dimitri hjá VIP til að ná í skottspoilerinn sem búið var að wrappa í CF. Fékk smá afgangs filmu til að gera tilraun.... Húddpumpurnar hjá mér voru ónýtar þannig að ég vildi aðeins pimpa húddprikið: Nú í CF! Svo loka olíuskipti. Vísindaleg olíugreining: Stóðst prófið og Mobil1 5-50 fer á. Fyllt á tankinn.... Að verða tilbúinn fyrir dallinn.... |
Author: | bimmer [ Sun 02. Oct 2022 01:55 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[7. júlí, 2022] [1 dagur í skip] Byrjaði daginn á loka hjólastillingu hjá Albert. Fór svo með rispuðu felguna til Brynjars, verkstæðið sem rispaði samþykkti að borga viðgerðina. Kom með felguna kl. 13:00. Kom aftur korter í sex og felgan ready Matchaði vel sem ætti ekki að koma á óvart, hann málaði þennan gang fyrir nokkrum árum Um kvöldið fór ég að pakka - tók nóg af ströppum til að skítamixa ef eitthvað kæmi uppá Tók með fornaldar XP laptop til að geta fiktað í Zeitronix displayinu sem hafði aðeins verið að stríða. |
Author: | bimmer [ Sun 02. Oct 2022 02:07 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[8. júlí, 2022] [Útskipunardagur] Byrjaði daginn í skúrnum, pakka dóti. Smá þrifadót..... Allskonar hlutir, olía, blásaraolía, reimar, bremsuklossar, etc. Skottspoilerinn líka, verður settur á í Þýskalandi. Enn smá dropar af loftsíuolíu.... Bjó til smá leiðbeiningar fyrir þá hjá Smyril line sem keyra bílinn. Kom við hjá Markúsi til að pikka upp verkfæri til að hafa með. Verkfærasett, skrúflykill og sleggja. Ég velti fyrir mér hvað í andsk. ætti að gera með sleggju en ákvað að taka hana með. Lagði svo í hann til Þorlákshafnar. Kominn á skrifstofu Smyril Line. RESULT!!!!! Þetta tókst! Ég og Markús fljúgum til Amsterdam 12. júlí, eftir 4 daga. Tökum svo lest til Rotterdam að ná í bílinn. |
Author: | fart [ Sun 02. Oct 2022 09:08 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
Geggjað, halda þessu lifandi - bæði bíl og þræði |
Author: | bimmer [ Mon 03. Oct 2022 10:34 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
fart wrote: Geggjað, halda þessu lifandi - bæði bíl og þræði Fínt að halda utanum þetta hér, Facebook er handónýtt í þetta. |
Author: | jens [ Thu 06. Oct 2022 07:57 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
Frábær færsla og gaman að fá að fylgjast með |
Page 213 of 214 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |