fart á msn wrote:Það má segja að gærdagurinn hafi verið viðburðarríkur. Ég fór í vinnuna um morguninn og tók fundi, sótti svo X upp á flugvöll (sem er reyndar í 5mín fjarlægð frá Nordea) og við dúndruðum niður á verkstæði. X vildi byrja bara kvissbang að vinna eins og honum er einum lagið. Þá var mechinn minn búinn að setja manifoldin á en það þurfti samt að gera og græja ýmsa hluti.
X var fljótur að spotta smávægilegt hér og þar sem þurfti að breyta eins og t.d. stillingum á wastegate actuators.
svo henti hann gírkassanum á. Um kl 18.00 var mótorinn kominn í og um 21.00 var hann kominn í gang. Það var virkilega gott móment. Eftir smá frágang var tekið pizzubrake og allir 5 sem voru á staðnum fengu sér lubbu eftir gott verk. Mechinn minn hafði boðað tvo aukamenn á kvöldvakt sem ég borgaði í cash. Það munaði virkilega um það.
Mapping gekk ágætlega, en það var ýmislegt sem þurfti að troubleshoota, aðallega það að jarðtengingin gleymdist.
Eftir mapping og chipmaking setti X boostcontrolerinn í og við fórum út að keyra. Það var greinilega munur á bílnum með chippinu í heldur en tjúndótinu hans X og mér skillst að það sé oft þannig. Meira power og betra respons, en það gæti líka verið boostcontrolernum að þakka. Svo mikið var powerið að ég var í wheelspinnáhættu í 4. gír á hraðbrautinni, þangað til að ein silicone hosan sprakk af.
ég er núna búinn að laga það.
X stóð svo sannarlega fyrir sínu, þessi maður er einstakur. Hann er ótrúlega fær í sínu fagi, mikið gæðablóð og með eindæmum vinnusamur og úrræðagóður. Hann er ekki ódýr þegar maður er að panta hann, en hann er sko ódýr eftirá.
hann vann stanslaust frá 12.30 til kl. 4.40AM þegar ég skutlaði honum upp á flugvöll.
Powerið núna er magnað, í raun vonlaust að floora bílinn í 1. og 2. gír, samt á semislikkum og 13-15gráður úti. Ég tók eitt svona 0-100 rönn og taldi í huganum, komst ekki lengra en "fjórir" og þá var 2. gír búinn, samt wheelspin og vesen. Bíllinn er greinilega öflugri, boostar mun fyrr, mun meira og mun þéttar.
Max psi er 15.5, en ég er kominn í 7-8psi áður en ég næ 3000rpm í águ gírunum, sem er bara flott





