"Nýjasti" bíllinn í safninu mínu
BMW 518 E28Þennan bíl fann ég út frá auglýsingu sem Elli hérna á spjallinu benti okkur kraftsmeðlimum á.
Hann er búinn að vera í eigu sama eiganda frá upphafi

Frá árinu 1982 til 2001 bar hann skráningarnúmerið A-2050, og var í þokkabót með kross á númeraplötunni helvíti lengi.
Það er vegna þess að eigandinn var læknir á Akureyri og var þetta því læknabíll.
Bílnum hefur alltaf verið haldið í toppstandi eins og má sjá á smurbók og reikningum sem fylgdu gripnum.
Gamli læknirinn hætti svo að nota bílinn um árið 2001 og var hann tekinn af númerum á því ári.
Bíllinn stóð inni á Akureyri frá 2001 til 2004, en þá ók sonur eigandans bílnum norður í Fnjóskadal og kom honum fyrir í geymslu þar.
Svo var það ekki fyrr en núna í síðasta mánuði þegar ég sæki bílinn að hann var gangsettur aftur

Helstu spekkar......
Nýskráður 16.06.1982 á Íslandi.
Framleiddur í Janúar 1982 samkvæmt BMW
M10B18 mótor með blöndung
Ekinn 151.079 km
4 gíra beinskiptur
Alpinweiss litur, hvítur
Aukabúnaður:
Enginn

Svo eru hérna myndir frá því ég sótti bílinn þann 18. ágúst síðastliðinn.
Ferðin hófst árla morguns í Keflavík og var henni heitið norður í Draflastaði í Fnjóskadal. Með mér í för var Gunni bróðir að sjálfsögðu

Fékk lánaðan þennan Musso jeppa hjá félaga mínum þar sem báðir bílarnir mínir með krók voru out-of-order


Svo var brunað í Reykjavík og sótt kerru. Við fundum eina góða hjá Húsasmiðjunni í Grafarvogi.

Ekkert verið að slóra, bara húkkað í og brunað norður.
Auðvitað var fyrsti viðkomustaðurinn á leiðinni Vínbúðin á Akureyri, þar sem þetta var á "menningarnótt" og
Gunni bróðir ætlaði að djamma í Reykjavík þegar við kæmum aftur til höfuðborgarinnar um kvöldið.
Þarna fyrir utan Vínbúðina hittum við líka hann gunnar á E30 M52B28.

Ferðalangurinn var ekkert nema sáttur við þetta road trip



20 mínútum eftir brottför frá Akureyri vorum við komnir yfir Víkurskarð og næstum komnir á leiðarenda......


Svo fór að glitta í bæinn Draflastaði þar sem bíllinn hafði verið geymdur síðan 2004.....
Húsbóndinn á Draflastöðum var búinn að kippa bílnum út fyrir okkur deginum áður svo hann blasti bara við okkur úti á túni.





Ekkert verið að tvínóna við hlutina og bíllinn opnaður á alla kanta og skoðaður.


Purolator að sjálfsögðu í húddinu


Þar sem bíllinn hefur eflaust þurft að keyra í gegnum erfiða snjóavetur á árum áður, hafði verið sett í hann 1" upphækkunarklossa allan hringinn

Og fendergapið að framan út af klossunum, er ALLSVAKALEGT eins og sést í samanburði við síma


Að innan....



Stærstu höfuðpúðar sem ég hef séð á ævinni



4 speed alla leið


Hljómtækin eins og þau gerðust best á sínum tíma....

Greinilega tjónlaus bíll þar sem tjónaskýrslan er útgefin af Brunabótafélagi Íslands


Smurbókin er upprunaleg

Þjónustubókin var einnig stimpluð á alla kanta, Inspection I og II oft í gegnum árin.


Við bjuggumst auðvitað við því að þurfa draga bílinn upp á kerruna með spilinu en nei nei......
Settum í hann fullhlaðinn rafgeymir og hann fór í gang í annarri tilraun


Þá var auðvitað ekkert annað í stöðunni en að brumma bílnum upp á kerruna.....





Tók einn hring í kringum bílinn og vá hvað hann er heillegur



Jebb.....enginn hægri spegill á þessum tíma






Ef þetta er ekki mesta tilviljun sem ég hef lent í lengi.....
Myndirnar heita frá DSC00457.JPG og upp í DSC00540.JPG.....
Og þegar ég smellti af á 518 merkið þá var það DSC00518.JPG


Þessi drullusokkur er nógu stór til að covera 295 dekk í breidd



Hann er sama sem ryðlaus


Jæja, klukkan farin að ganga 16:00 og við fórum að halda heim á leið.
Festum bílinn með strekkiböndum svo við myndum nú ekki týna honum á leiðinni...hehe.



Svo var lagt í hann heim á leið....


Stoppað nokkrum sinnum til að taka bensín á Mussoinn....
Hér var bensínstoppið á leiðinni heim á Blönduósi

Svo henti ég Gunna út í Reykjavík um 22:00.
Stoppaði aðeins í bænum og var kominn heim í Keflavík um 0:00....

The End.
Bara góður bíll
