Ég stóðst ekki mátið og keypti
540iA hjá Knúti hérna á spjallinu.
Þetta er Ameríku bíll fluttur inn sumarið '06 en hefur lítið sem ekkert verið keyrður á Íslandi. Hér er því um virkilega heilt og með öllu óryðgað body að ræða. Vélin sem var í bílnum eyðilagðist. Nikkasil, þjappaði ekkert á 2 eða 3 cylendrum. Það er því í bílnum núna evrópuvél ekin um 150þkm. Bíllinn sjálfur er ekinn um 195þkm.
Það er eitthvað vesen á skiptingunni, föst í limp mode en hann bakkar alveg. Svo logar check engine ljósið. Að öðru leiti held ég að bíllinn sé í nokkuð góðu ástandi fyrir utan einhver nokkur smáatriði.
Planið er að breyta bílnum þannig að hann verði alveg eins og evrópu bíll og gera hann beinskiptan með 5g m60 gírkassa. Það verða ekki gefnar neinar dagssetningar en sumarið er tíminn fyrir svona græjur.
Þetta eru leifar af einhverju tape'i sem var þarna á bílnum, þessi amerísku stöðuljós á hliðunum verða að fá að víkja!
Bíllinn var fluttur inn með litlu framtjóni, húdd og stykkið í kringum nýrun, stuðarinn slapp. Það vantar tilfinnanlega V8 framenda.
Undir númeraplötunni eru göt fyrir amerísku númeraplöturnar, þyrfti að hverfa. Svo verða þessar hliðarlínur látnar hverfa líka.
Þetta er náttúrlega hrikalega amerískt litaval á innréttingu, allar líkur á því að þessu verði complete skipt út fyrir eitthvað allt annað. Complete þ.e. teppi, loftklæðning og allt þar á milli!
Bíllinn er mjög vel búinn, rafmagn í stýri, sími, cd magasín, cruise control, hiti, rafmagn og minni í sætum, topplúga o.fl.
Frágangur eftir þarna í húddinu, reikna með því að taka vélina úr þegar ég geri bílinn beinskiptan, það er leki með olíupönnupakkningu sem verður að laga og þá er þægilegt að taka bara allt úr.
Þetta verður spennandi verkefni og ég vona að útúr þessu komi skemmtileg græja.
Shadowline væðing er spennandi kostur
Læst drif úr 750iA hlutfall 3.15 á móti 2.93 sem er í honum núna.
Bremsur, fjöðrun og fóðringar virðist allt vera í góðu lagi.
Ég á hvít stefnuljós að aftan á móti stefnuljósunum að framan.
Annars verða fjárútlát lágmörkuð, ekki mikið sem þarf að versla en talsverð vinna framundan.