Þá er komið að því strákar og stelpur!
Árshátíð BMWKrafts 2011 verður haldin
laugardaginn 5. Nóvember í Mjóddini (Gengið inn hliðina á Subway) kl 19:05 Það verður að sjálfsögðu hlaðborð eins og undanfarin ár.
Boðið verður uppá tryllta kraftsbollu eins og síðustu ár og við mælum með að menn kippi með sér nokkrum köldum til að drekka eftir matinn(
ekki skilyrði samt)

Gos og snakk verður á borðum.
Vil hvetja alla til að mæta, meðlimi og non meðlimi, konur og kalla :D
Kraftsvideoið verður á sínum stað.Endilega takið þátt í árshátíðarkosningunni:
http://www.bmwkraftur.is/kosningar2011/Það verða líka veitt verðlaun fyrir sigurvegara úr árshátíðarkosningunni.
Matseðill kemur seinna en það verður Múlakaffi sem græjar matinn ofan í okkur
Verð fyrir meðlimi er kr. 4.000.- (sama verð gildir fyrir maka) Verð fyrir ekki-limi er kr. 5.000.-
Það er nauðsynlegt að þeir sem ætla sér að mæta staðfesti komu sína á vallifudd@gmail.com . Seinasti séns til að skrá sig er á miðvikudagurinn 2 Nóvember, þannig að allir að skrá sig og borga sem fyrst Best er að þegar þú hefur staðfest komu þína (og maka ef við á), að skella sér inná heimabankann og millifæra inná:
reikning 0322-26-2244
kennitala 510304-3730
Munið að láta kennitölu eða nafn greiðanda fylgja með.
Þeir sem að hafa mætt á Árshátíðir síðustu ára vita að þetta er alltaf alveg ótrúlega gaman. Góður félagskapur, góður matur og gott að drekka. Ég vona að sem flestir láti sjá sig!!

kveðja,
Skemmtinefnd BMWKrafts