bimmer wrote:
Kemur alveg skýrt fram í fyrsta pósti að vélin er ósamsett.
Almennt varðandi kaup á notuðum hlutum þá er enginn "ábyrgð" NEMA seljandinn
viti af eða hafi mátt vita af galla. Semsagt selt viljandi eitthvað sem ekki var í lagi.
Hins vegar ef hann veit ekki betur en allt sé í standi og síðan fer allt í drasl hjá nýjum
eiganda þá er það mál nýja eigandans, áhættan af rekstri hlutarins flyst yfir við kaup.
Það er kaupandans að geta sýnt framá að seljandinn hafi ekki selt í góðri trú og
einnig er skoðunarskylda kaupanda rík. Ekki hægt að líta svo á að maður hafi
sama rétt við kaup á notuðum hlut og nýjum.
Hvað varðar þennan vélarpakka þá er vélin opin og auðvelt fyrir áhugasama að
koma og fá að sjá allt og skoða í detail. Í raun mætti segja að auðveldara sé að
skoða ástandið en ef vélin væri samsett.
Ekki rétt með ábyrgðina, eins furðulegt og það hljómar. Ef maður skoðar álit nefndarinnar þá snýst þetta
ekki endilega um hvort seljandi vissi af því eða ekki að vara var gölluð (ég þurfti að kynna
mér þetta nokkuð vel vegna máls sem kom upp í fjölskyldunni). Skoðunarskyldu-elementið er ekki
eins ríkt og maður myndi ætla og almennir fyrirvarar um as-is í kaupsamningum/afsali eru ekki heldur final.
Þetta er annars rétt sem þú segir um þessa vöru. Þetta er opið og hægt að skoða innan í alla hluta. Hér er verið að
selja vélarhluta ekki samsetta vél í gangi.