bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 01. May 2024 00:25

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 13 posts ] 
Author Message
PostPosted: Sun 26. Dec 2004 17:18 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 17. Feb 2004 20:30
Posts: 306
Location: Akureyri
ATH ---> þessi bíll er SELDUR......
Til sölu BMW 318is
Fyrst skráður 11/1994.
Bíllinn er fluttur til Íslands árið 1999 og var eitthvað lítið á Reykjarvíkursvæðinu, bíllinn er því alveg algerlega ryðlaus. Lakkið á bílnum er í frábæru standi (enda verið hugsað alveg gríðarlega vel um bílinn) fyrir utan smá grjótkast á húddi og eina litla Hagkaupsbeyglu á bílstjórahurðinni, annars frábært.
Bíllinn er að sjálfsögðu beinskiptur og í honum er M42 mótorinn sem er 1800cc og skilar 140 hestöflum og er þetta svona líka bara þéttur og skemmtilegur kraftur í þessum bíl.
Bíllinn er svartur eins og kannski sést á myndunum hér að neðan .
Ég hef ekki verið að stunda það mikið að spyrna þessum bíl eitthvað og man ég bókstaflega ekki eftir því að hafa sett hann upp í redline-ið.
Þessi bíll er ekinn 173 þúsund kílómetra og ég er nýbúinn að láta fara aðeins yfir mótorinn í bílnum og kom hann alveg hreint glæsilega út.

Þá nokkuð um búnaðinn í bílnum:

Ný inpro Angel Eyes með chrome botni
Augabrúnir á ljósunum
Ný Chrome stefnuljós á hornunum að framan
Nýir Chrome stefnuljósakubbar á hliðum
Topplúga (með rafmagni)
Útvarp
CD
Rafmagn í rúðum
Rafmagn í speglum
Svartar filmur í afturgluggum
Svart pluss áklæði (sætin eru eins og ný)
Fjarstýrðar samlæsingar
Þjófavörn
Leðurstýri (smá rifið að ofan, bara útaf notkun)
Leður gírhnúður (smá rifinn, bara útaf notkun)
ABS bremsur
Líknarbelgir
Vökvastýri
Tregðulæsing á drifi
Reyklaus bíll
Sport fjöðrun (original fjöðrun í þessum bílum)
Sport Pústkerfi (original pústkerfi samt, með original flækjum)
Chrome stútur á pústinu
15” original BMW vetrarfelgur (dekkin eru í fínu standi og alveg fullt eftir)
16” PCW sumarfelgur (dekkin eru í mjög góðu standi og nóg eftir)

já, bæði bíllinn og ég erum búsettir á Akureyri.

Nokkrar myndir. (með felgunum sem fara með honum)
Flottur í myrkri :wink:
Image

Image

Image

Image

Image

Image

Fleiri myndir er svo að finna á síðunni minni um bílinn.

www.cardomain.com/id/vallio

Verð: veit ekki alveg, skulum hafa það einhversstaðar í kring um 850 þúsundin kannski. Svo má bara gera manni tilboð, ég vil samt helst engin skipti en það má "kannski" skoða það.
ps. mér liggur ekkert á að selja bílinn svo ekki vera að gera mér einhver asnaleg tilboð.

en athugið að ég er ekki með það í huga að selja með honum 17” felgurnar sem eru á sumum myndunum.
Svörtu nýrun geta alveg farið með (held ég)....hehe

ATH: Bíllinn fæst á 700 þúsund staðgreitt... frekari upplýsingar á tölvupóstinum vallio@internet.is

Fyrir allar frekari upplýsingar má hafa samband við mig í gegnum einkapóstinn hér á kraftinun, e-mail á vallio@internet.is og svo er síminn hjá mér 694-6757
Einnig getið þið skrifað inn skilaboð bara hér að neðan ég les þetta það oft (daglega).
:D

_________________
Valli,
VW Passat 4motion '07
Kawasaki Z-750 '07
Ski-Doo mxz 600


Last edited by vallio on Thu 13. Jan 2005 19:24, edited 7 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 26. Dec 2004 17:25 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Jun 2003 19:18
Posts: 206
Location: Akureyri - Iceland
Þessi bíll er BARA í lagi! Allveg Rock Solid! :)
Valli! Ekki selja hann nema það sé.. já.. hehe það góða á leiðinni :D

_________________
---- Bmw 320I E36 - Seldur ----
„Don't Hate The Player, Hate the game!”
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 26. Dec 2004 18:53 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
Já þetta er sko BMW fyrir byrjendur og lengra komna...Snilldar samsetning af hræódýrum rekstri og stórskemmtilegum akstri.. Bíllinn er allur eins og nýr og kemur olían næstum hreinni útúr mótornum heldur en hún fór í.. það virkar allt einsog það á að gera. lakkið er ógeðslega gott!! og það sér ekki á neinu nema stýri og gírhnúð inní bílnum.
ég er sjalfur mikið buinn að velta því fyrir mér að kaupa hann aftur ;) en seigist alltaf vera vaxinn uppúr þristum :P...allavega þetta er í alvöru talað ótrúlega gott eintak og kemur öruklega sterkur inn í topp 5 baráttuna um bestu E36 landsins.
Sem dæmi um meðferð þá sögðu þeir á BMW verkstæðinu hér á ak að ég hefði farið ósköð pempíulega með hann þegar ég átti hann :oops: (mátti ekki heyra neitt öðrvísi í dag en í gær í bílnum og þá stóð ég í hurðinni hjá þeim að fá þá út að skoðann :D )

en allavega komdu honum í góðar hendur Valli og svo þíðir ekkert að gugna á...;).


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 26. Dec 2004 22:33 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Posts: 1117
Location: Hafnarfjörður
Get vottað það að þetta er mjög gott eintak. Ég fékk það hlutverk að finna E36 fyrir frænda minn fyrir 2 og hálfu ári síðan og þetta var sá besti sem var til sölu á þeim tíma. Ég keypti bílinn af náunganum sem lét flytja hann inn og hann var ekki sáttur því þessi bíll var mjög dýr á sínum tíma frá Þýskalandi og tapaði hann mikið á honum :shock: Ég lét skoða hann vel áður en hann var keyptur og hann kom mjög vel útúr því.

_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 27. Dec 2004 14:21 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Tue 02. Nov 2004 21:52
Posts: 63
Location: akureyri
Get staðfest það hér og nú að þetta er fjandi gott eintak ef ekki bara það besta af þessari týpu! lakkið er alltof gott miðað við aldur á bílnum :)
Þetta er fystur kemur fystur fær bíll!!

_________________
Audi A6 2,7 V6 Biturbo (græja)
Bmw 320iA coupe (seldur 4 feb)
+ 9 aðrir bílar sem komast ekki fyrir :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 28. Dec 2004 22:33 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 17. Feb 2004 20:30
Posts: 306
Location: Akureyri
ég vil bara þakka fyrir alveg frábær viðbrögð...
var ekki liðin nema svona 2 mín eftir að ég setti inn auglýsinguna þegar að síminn minn hringdi og fyrsta tilboðið kom inn, og eftir það hefur mér borist fjöldinn allur af tilboðum......... TAKK, TAKK 8)

en af gefnu tilefni þá vil ég bara benda á að mig langar ekkert að fá sjónvarp, video, DVD, heimabíó, sófasett, sófaborð og bara 50 þús í peningum :roll: ................ hehehe
þegar ég tala um skipti þá var ég einfaldlega að tala um skipti á öðrum bílum sko........

það sem fólki dettur í hug :rofl:

en allavega.... TAKK og endilega haldiði áfram að hafa samband :D

_________________
Valli,
VW Passat 4motion '07
Kawasaki Z-750 '07
Ski-Doo mxz 600


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 28. Dec 2004 23:05 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Thu 01. Apr 2004 17:54
Posts: 38
Location: Akranes
Átti Njalli (Njáll) þennan bíl?

_________________
Sölvi Már Hjaltason 8657526/6648590

Honda CRF 250 '06


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 29. Dec 2004 01:23 
Magnific0 wrote:
Átti Njalli (Njáll) þennan bíl?


Neibb engin Njáll hefur átt þennan bíl.


Top
  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 29. Dec 2004 01:24 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Posts: 1117
Location: Hafnarfjörður
ÞETTA var ég. Gaurinn sem lét flytja þennan bíl inn hét Lárus og síðan hafa þrír átt þennan bíl á Akureyri :!:

_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 29. Dec 2004 12:37 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 17. Feb 2004 20:30
Posts: 306
Location: Akureyri
Magnific0 wrote:
Átti Njalli (Njáll) þennan bíl?


Lárus lét flytja inn bílinn og næstu eigendur voru Guðni, Einar, Valli (ég) :D
sem sagt, enginn Njáll :D

_________________
Valli,
VW Passat 4motion '07
Kawasaki Z-750 '07
Ski-Doo mxz 600


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Dec 2004 08:01 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 17. Feb 2004 20:30
Posts: 306
Location: Akureyri
ATH. henti hugmynd af staðgreiðsluverði inní auglýsinguna sem er 700 þús stgr.

_________________
Valli,
VW Passat 4motion '07
Kawasaki Z-750 '07
Ski-Doo mxz 600


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Dec 2004 09:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8503
Location: 101 RVK
Flottur bíll og bara gott verð.


Nice one brovah

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 09. Jan 2005 03:00 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 17. Feb 2004 20:30
Posts: 306
Location: Akureyri
SELDUR

já, bíllinn er semsagt seldur.... þó að ég fái að keyra hann fram að mánaðarmótum ............. JEAH !!! :D
ég vil bara þakka þann gríðalega áhuga sem var á bílnum, e-mailin hafa ekki hætt að koma og hef ég verið að fá svona 1 - 2 ný á dag............. bara ALLT gott um það að segja :clap:

_________________
Valli,
VW Passat 4motion '07
Kawasaki Z-750 '07
Ski-Doo mxz 600


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 13 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 89 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group